::.Kóngakvöld
Já komuð marg blessuð og sæl
og ekkert helvíts væl
þó mánudagur er dagur sem allir hata
í fyrra lífi hét ég Kata
Nú er ný helvítis vika að byrja
þarf alltaf að vakna snemma og smyrja
vinna alltaf ógeðslega ömurlega lengi
þó það sé ekki í fatahengi
Ég veit ekki afhverju ég er semja
eitthvað sem mætti fara hemja
Ef þið viljið heyra meira
ríðið þá bara stelpu í eyra.
Já smá flipp í gangi. Ég mætti prufa taka samt Gaua.is til fyrirmyndar því hann er frekar góður í þessu, þetta var meira svona djókur. En nóg um það, ég er ekkert bitur...frekar ferskur bara eða sítrónu ferskur eins og Hjalti vill orða það stundum ;) Síðasta helgi var frekar góð en á föstudeginum var ég bara að vinna á Sólon með honum Skúla á efri bar. Frekar dautt kvöld og var lokað klukkan 4:00 og ég var kominn heim klukkan 5:00 og fór beint í háttinn.
Á laugardeginum var vaknað seint en ég ætlaði með Ágústu og Lilju á skauta þar sem ég hef ekki farið á skauta síðan í 8.bekk eða eitthvað og langaði virkilega að fara. En jújú...ég svaf yfir mig á meðan Lilja reyndi að ná í mig þá var ekki fræðilegur að vekja mig. þegar klukkan fór að nálgast 17:00 fór ég og gerði mig ready fyrir Kóngakvöldið okkar Rafns og Hjalta. Við vorum allir í svörtu Suit-i (svört jakkaföt, svört skyrtao og svört slaufa). Ég fór heim til Rabba og fékk fordrykk þar í boði foreldra hans eða White Russian...fáranlega gott. Meðan við drukkum og biðum eftir honum Hjalta var horft á bragðdaufan Man Utd leik. Svo kom Hjalti og þá var pantaður leigubíll.
Við héldum þá áleiðis á Hilton hótelið þar sem við áttum pantað borð á veitingastaðnum Vox. Ég var svo innilega til í að smakka eitthvað nýtt og fékk mér villta gæs að broða sem smakkaðist virkilega vel. Og svo fékk ég mér eftirrétt sem var einnig mjög góður. Eftir matinn færðum við okkur á barinn og sátumst niður þar og drukkum úr glösunum okkar og fórum svo bara í bæinn, og þar lá leiðinn á Hverfisbarinn þar sem Gott í kroppinn partýið var.
Þar hitti maður alveg fullt fullt af fólki. Ég var orðinn alveg helvíti góður á því þarna um 23:00 leitið og fór í dyrnar og var að taka móti fólki og knúsa alla sem komu inn (ekki spyrja afhverju). Svo sat ég með Karlottu, Sæunni, Helgu og Erlu Bjé á borði ásamt Gaua bróðir og kærustunni hans hana Auði. Karlotta sagði svo við Auði að hún líktist ekkert smá leikkonunni Reese Witherspoon, ég var ekki á sama máli og greip svona hálfpartinn inní og sagði: Mér finnst þú meira svona líkjast leikarnum Antony Hopkins.....það misstu allir sig úr hlátri nema henni Karlottu og var hún ekki sátt. Ég var orðinn frekar skrautlegur þarna um tíma og þegar klukkan var orðinn 00:00 kom Hummer Limmóinn.
Í Hummernum var stemmari. Ég, Rafn, Gaui bró, Auður, Hjalti, Jón Ragnar ásamt einhverjum stelpum komu inní bílinn og það var skálað kampavíni og drukkið bjór. Ég fór svo á eitthvað trúnó með einhverri stelpu sem ég þekkti gjörsamlega ekki neitt og ég man ekki alveg hvernig þetta var en ég sagði við hana eitthvað "Pabbi þinn er þetta"...hún horfði bara á mig í smá stund eins og hún vildi myrða mig. Vitir menn þá var pabbi hennar nýdáinn og ég var alveg miður mín og við töluðum alveg heillengi um hann.
Eftir þennan hálftíma rúnt var stoppað á 101 eða nýja staðnum one-o-one. Við fórum þangað inn og beint á dansgólfið þar sem kallinn var kominn í stuð. Ég fór og ætlaði að kaupa mér drykk og þegar drykkurinn var kominn á borðið var ég rukkaður um 1.300 krónur. Ég sagði að ég vildi bara einfaldan....heyðru þá er einfaldur bara á 1.300 krónur !!!!!! Ég horfði smástund á gaurinn og spurði hvort að hann vildi ekki fötin mín líka...það vakti ekki mikla kátínu hjá gaurnum :D hahah....mér þótti þetta fyndið.
Svo kíkti ég á Apótekið....b.t.w. með einhverjum Pólverjum, ég hélt svo innilega að ég væri með Hjalta og Rabba en nei þá hittum við einhverja Pólverja og ég var sko fljótur að stinga þá af. Ég var reyndar ekkert lengi einn því ég hitti einn vin minn á Apótekinu og átti gott spjall við hann. Svo fór ég bara á Sólon og hitti þar alla strákana. Ég var orðinn frekar fullur þar á tímabili og var þar bara alveg til lokunnar.
Virkilega sáttur með þetta kvöld =) ...vil þakka Rafni og Hjalta klárlega fyrir þetta kvöld. Við erum meira segja búnir að ákveða hitting næstu helgi heima hjá mér þar sem ég verð einn heima og ætlum við að taka Little Britain USA maraþon á þetta og drekka bjór. Hver veit nema maður skelli upptökum frá síðasta bústaðarferð í tækið sem enginn er búinn að sjá =)
Kveðja GummOn
En nú rétt í þessu var ég að koma heim, og ég er nú einu sinni svo steiktur að ég var alveg DJÚPhugsin þegar ég var að beygja inn götuna mína. Svo sá ég þrjá Toyota Yaris bíla í bílastæðinu hægra megin um leið og ég er að keyra inn götuna mína. Þá fékk ég þá hugmynd að telja hvað margir Toyota bílar væru í götunni.....já trúðu mér en það eru hvorki meira né minna en 27 Toyotubílar í götunni minni....wtf ??? ...svo fattaði ég að ég var sjálfur á Toyotabíl þannig það er 28 bílar í götunni minni :D 







