" />

::.Blogg í kvöld

04. júlí 2006 klukkan 00:41
Ég ætla að blogga í kvöld elsku dúllurnar mínar!!!



Ég og Kalli (afi hans Steina)...tekið 17.júní 2006 á Akureyri!!

Kveðja GummOn

Guđmundur Jónsson

::.Akureyrarsnilld

21. júní 2006 klukkan 06:33
Hæ hó og jíbbíí jejjíí. Langt síðan að ég bloggaði síðastm, reyndar er netið búið að vera niðri hjá mér svo ég hef ekkert getað bloggað sem er frekar fúllt. Þótt ótrúlega séð þá er alveg fullt fullt að frétta af mér og alveg hellingur um að vera á næstu dögum.

En í síðustu viku eða á miðvikudaginn fyrir viku þá lagði ég leið mína til Akureyrar. Ég fór einn á bíl og lagði ég af stað klukkan 18:30. Það var frekar skrítið að keyra svona einn til Akureyrar og syngja með sjálfum sér til að halda sér vakandi. Það gerist ekkert merkilegt á leiðinni nema að ég stoppaði einungis á Staðarskála og fékk mér hambó.

Svo eftir langa ferð....EINN....þá var ég kominn uppúr 23:00 til Akureyrar. Ég fór bara beint til Jóns og Steina, ég man bara ekki betur en að við fórum bara beint í tölvuna og vorum í henni til að verða 4:00. Steini þurfti samt að fara um leið og ég var kominn til Júlíu sinnar og ganga frá íbúðinni sinni. Ég og Jón skemmtum okkur allavega konunglega sveittir fyrir framan tölvuna.

Daginn eftir var vaknað klukkan 14:30 og fór ég að hjálpa honum Steina kallinum að tæma íbúðina hans þar sem hann þurfti að skila henni þennan dag. Svo þegar það var loksins búið og Steini búinn að fylla bílinn minn af drasli fórum við í ríkið og keyptum að drekka fyrir helgina, Steini keypti aðeins 8 kampavínsflöskur þar sem hann var að fara útskrifast. Svo urðum við bakkabræður svo svangir ásamt Júlíu og fórum við á Subway og fengum okkur að éta. Svo skutlaði ég honum Steina í vinnuna þar sem hann vinnur í Dominos. Ég fór bara beint til Jóns og sátum við og horfðum á HM06. Steini var svo loksins búinn í vinnunni um 20:00 leitið og ákváðum við að skella okkur í fótbolta ásamt fullt af fólki. Þetta var helvíti fínn bolti þar sem ég og Steini vorum í sama liði. Við unnum alla leikina okkar og skoraði ég eitt STÓRglæsilegt mark...og var það úrslitamarkið, en það vildi ekki betur til en að það fór beint í bláhornið úr svona 30 metra færi. En þegar boltinn var búinn fórum við beint á Dominos og pöntuðum við okkur eina feita petsu og leigðum okkur Svamp Sveinsson. Við fórum  til Jóns og horfðum á hana og átum petsuna. Þessi mynd er alltaf jafn góð og get ég alltaf hlegið eins og vitleysingur af henni. Svo var bara haldið áfram í þessum tölvuleikjum....það er bara einum of gaman að hanga með þessum strákum. Svo sofnaði ég aftur klukkan svona um 4:00, eða yfir Ace Ventura 2.

Daginn eftir vaknaði ég og fór með honum Jóni í ljós, en þar sem Steini kom ekki með okkur þá var hann farinn suður í jarðaför. Svo fórum við í bakarí og keyptum okkur að éta og svo beint heim til Jóns að horfa á HM06. Ég man ekki betur en að ég hafi opnað mér bjór og drukkið með leikjunum og var ég búinn með alveg 4 - 5 bjóra. Svo fór hann Jón að vinna og ég var bara eitthvað einn að drekka bjór og horfa á HM06....hversu ljúft var það. Svo loksins kom Steini...og já pínu í því. Við dressuðum okkur upp fyrir kvöldið og drukkum bjór. Svo komu Helgi, Gaui, Grétar og Gaui (bróðir minn). Bróðir minn var nú bara eftir en hinir strákarnir fóru uppá tjaldsvæði og maður sá þá bara ekkert meir þessa ferð. Við skelltum okkur svo niðrí troðfullann bæinn. Fórum fyrst á Kaffi Akureyri og svo Amor. Reyndar eru þetta einu tveir staðirnir sem eitthvað er varið í. Sumir hverjir voru mökkölvaðir...en samt helvíti gaman að vera þarna og kynnast nýrri menningu...hahah!! Svo þegar klukkan var orðinn 4:00 lokuðu bara allir staðirnir. Ég og Gaui bróðir minn löbbuðum bara heim til Jóns í einhverju flippi. Gaui fór bara beint að sofa og ég var bara í mínum góðum fílingi að poppa og horfa á Ace Ventura 2. hahaha hversu mikil steik er ég.

Vááá daginn eftir ef ég aldrei vaknað í eins miklu svitabaði. Vitir menn þá hafði ég ekki komist úr einni flík og svaf ég ég öllum fötunum mínum. Steini og Jón komu og vöktu okkur Gaua í svitabaðinu og voru þeir flottir í taujinu, enda báðir að útskrifast. Ég og Gaui fórum svo og dressuðum okkur upp og fórum í sturtu og svona. Við brunuðum uppá tjaldsvæði og hitti ég krakkanna, eða hitti samt bara Ívar, Helga, Gaua, Hjalta, Oddrúnu og Ingó. Stoppuðum reyndar ekkert lengi og fórum bara í veisluna hans Steina. Skáluðum þar kampavíni og átum. Svo var klukkan að verða 16:30  og landsleikurinn í handbolta á næstunni. Ég, Steini, Gaui, Binni og Pétur keyrðum til vin hans Steina og horfðum á leikinn í 42" plasma skjá og drukkum bjór....ekki amalegt það! Það var þvílíkur hiti í okkur öllum og var bara góð stemmning á okkur. Svo eftir leikinn tókum við Taxi og fórum beint á Þórshöllina, eða íþróttahöllina á Akureyri. Þar voru allir stúdentarnir saman komnir og átu allir saman. Við kláruðum heila Tópas flösku og drukkum ennþá meiri bjór og borðuðum dýrindis mat. Það var rosalega gaman þarna og mikið hlegið og sungið, en það var alveg um 1000 manns þarna inni. Svo þegar þetta var búið fórum við heim til Jóns og sóttum meiri bjór. Við drukkum hann bara fyrir utan höllina og töluðum við fullt af fólki. Ég veit ekki betur en að allir voru að hlægja af mér því ég var svo fullur og vitlaus og með líka þennan þvílíka aulahúmor. Eitt skiptið þá sagði ég eitthvað við hann Steina og hann var nýbúinn að taka sopa og það var víst eitthvað svo hrikalega fyndið að hann frussaði öllum bjórunum yfir skóinn hans Gaua....haha þvílík steypa. Svo hitti ég hann Jökul og Gaua þetta kvöld fyrir utan KA-heimilið...veit samt ekkert afhverju!! Ætlaði að hitta hann Helga eitthvað þetta kvöld...en vitir menn, ég stakk hann alltaf af allstaðar...ég sagði honum bara koma á staðinn sem ég var á og svo fór ég alltaf bara. Við fórum svo beint í bæinn og beint inná Amor. Þar var dansað og drukkið, ég veit ekkert hvað ég eyddi þarna inni...en það var þó nokkuð mikið!! Svo vorum ég, Gaui og Steini einir eftir niðrí bæ...og líka hann Jón. Við vorum að horfa á einhverja vitleysinga vera slást og voru sumir ýkja fullir, berir að ofan eða með blöðru á hausnum á sér....æji erfitt að útskýra þar sem þetta var subbulegt þarna úti. Þannig við ákváðum bara að forða okkur og þar sem Jón var edrú fórum við í einhverja búð og keyptum við okkur egg!! Váá hvað það var helgið mikið. Steini var að kasta í allskonar umferðarskilti og smassaðist eggið alltaf og ffór allt alltaf inní bíl. Það var alveg endalaust fyndið og Gaui bróðir grét alveg úr hlátri. Svo komum við okkur bara heim og settumst niður fyrir framan sjónvarpstækið og setti ég Ace Ventura 2 í tækið....hahahahaha vá þriðja kvöldið í röð! Strákarnir sofnuðu allir og ég var bara eitthvað einn að hlægja geðveikt mikið klukkan 8:00 um morguninn.

Sunnudaginn vaknaði maður bara í rólegheitunum. Hulda mamma hans Steina var búinn að bjóða okkur að borða um kvöldið og ákváðum við Gaui að leggja ekkert af stað fyrr en að við vorum búnir að borða, líka þenna frábæra mat. En á meðan við biðum eftir því að fara borða horfðum við bara á HM06. En svo þegar við vorum búnir að éta yfir okkur og kveðja alla lögðum við af stað frá Akureyri um 23:30 og vorum ekki komnir heim fyrr en klukkan 2:30 um nóttina.

En ég vil þakka sérstaklega honum Steina og Jóni fyrir frábæra ferð og þá líka Gaua bróðir. Þetta var einum of gaman og er í rauninni ekkert að marka þessa sögu hér fyrir ofan þar sem komu of mikið af góðum mómentum. Ég og Gaui erum mikið að spá í að fara helgina 14 - 16 júlí aftur til Akureyrar og taka djamm með þessum snillingum aftur.

En mér þykir þessi vika vera eitthvað svo fljót að líða. En ég var að spá hvort fólk ætlar að gera eitthvað næstu helgi..?? Hvort eitthvað sé í gangi?...Hvort fólk ætlar á Færeyskudaga? Á Þjóðhátíð??.... Ég veit ekki neitt neitt... :D En ég er allavega til í þetta allt!!

Ég nenni eiginlega ekkert að blogga mikið meira því ég held að þetta sé líka alveg nóg ;)

Kveðja GummOn
Guđmundur Jónsson

::.Alltaf hress

12. júní 2006 klukkan 07:40
Jæja...ég skil þetta ekki en ég er alltaf eitthvað svo hress þessa dagana og ánægður að vera til. Ég hugsa ótrúlega oft þegar ég fer í háttinn hvað ég er heppinn að eiga svona marga góða vini, góðar vinkonur og góða fjölskyldu. Mér þykir ekkert jafn skemmtilegra en að hitta vini mína og skemmta mér með þeim og er maður alltaf að kynnast nýju fólki. Langaði bara aðeins að tjá mig um þetta og segja að ég elska ykkur öll sem þekkið mig.

En nóg með væmnina, ég ætla að fara aðeins yfir þessa helgi sem er bara búinn. Á föstudaginn þá vann maður bara allann daginn og líka yfir nóttina. Ég var að vinna mína síðustu vakt á Sólon, ég bara sá mig ekki fært um að vinna þarna í sumar því það er svo mikið að gera hjá mér og vildi ég ekki vera festa mig í einhverri vinnu sem ég gæti ekkert mætt í. Ég ætla líka að vera rosalega duglegur að vinna í Vatnsvirkjanum og taka að mér aukavaktir um helgar þegar mér hentar. En nóttin var mjög fljót að líða. Helgi, Grétar, Jökull, Ívar og Gaui kíktu á mig og bauð ég þeim öllum uppá drykk...eða drykkinn Aygo. Þeim þykir hann víst alveg hrikalega góður, enda kappinn bjó hann til. Svo þegar vinnan var búinn pikkaði ég hann Gaua upp og skutlaði honum heim og fór ég beint heim í háttinn.

Laugardaginn vaknaði ég klukkan 13:00 og fór og sótti vinnufélaga minn. Við brunuðum í Smáralindina og ég fór í ríkið og keypti gjöf handa honum Hjalta. Svo fórum við beint að vinna í Vatnsvirkjanum og vann ég til að verða 18:00. Ég skutlaði honum svo heim og fór í ljós. Þegar ég var búinn að þessu öllu kjaftæði þá var farið heim og horft á HM-leik. Ívar kom fyrstur heim til mín og svo strax á eftir komu Helgi og Halli. Við grilluðum okkur hamborgara og drukkum bjór. Svo komu Grétar, Gaui og Jökull og var farið í drykkjuleiki þar sem sumir voru lagðir í einelti haha....!! Svo kom Jói og Guðmann, ég bauð honum Guðmanni með því skilyrði að hann myndi taka Gítarinn með sér. Og vitir menn.....hann kom með gripinn. Hann er svo fokking góður á gítar og var mikið um sönginn þegar hann kom. En þegar klukkan var orðinn sirka 22:30 var haldið í Nauthólsvíkina til hans Hjalta í partý. Þar var alveg fullt af fólki sem ég þekkti bara ekki neitt. Ég gaf honum Hjalta eitt stykki sleggju og Hermannadót, svona byssu, handsprengju og eitthvað drasl í dótabúðinni í Smáralind. Ég var orðinn nokkuð fullur á tímabili og get ég eiginlega ekkert lýst því hvað skeði þetta kvöld, eða hvað ég gerði. Ég man bara að það kom upp eitthvað vesen með hann Ingvar (eins og vanalega) því honum var ekkert boðið þarna....en hann kom bara samt!! Ég, Jói, Jökull og Helgi fórum bara niðrí bæ því við nenntum ekki þessu rugli. Jói lagði bílnum einhversstaðar rétt hjá Hallgrímskirkju og sungum við ýkt mikið!! Lagið hljómaði einhvernveginn svona : ,,Feita belja, Feita feita beeeeeljja"!! :D Þvílík steik...svo vorum við að öskra á einhverja kellingar að þær væru feitar beljur og eitthvað rugl. En við fórum bara beint á Sólon og tjúttuðum eitthvað þar og sumir voru of fullir og ældu...og sá aðili ældi bara ekki....hann ætli í 3 stór bjórglös hhahahahaha!! :D Ég man svo að ég fór á Hverfis eftir að hafa beðið í röð í svona 7 klukkutíma. Stoppaði reyndar ekkert lengi þar...en ég var þó eitthvað þar. Svo fór maður bara aftur yfir á Sólon þangað til að staðurinn lokaði.

Á Sunnudeginum vaknaði maður GRAUTþunnur og fór beint að spila fótbolta. Við skitum gjörsamlega á okkur og fórum við allir í bónus að kaupa klósettpappír. Við töpuðum 4 - 0 og var greinilega mikið um þynkuna. Ég fór heim og í sturtu, fór heim til Helga og við sjænuðum okkur og fórum á Esso og fengum okkur pylsu. Þegar ég var að fara borga pylsuna mína spurði afgreiðslu daman mig hvort ég væri með Safnkort?? Ég skildi hana ekkert og sagði bara HA??....þá sagði hún aftur : Ertu nokkuð með Safnkort? Þá heyrðist í Helga aðeins í burtu: Hvað er það, eitthvað nammi eða?? Ég gjörsamlega SPRAKK úr hlátri ásamt fleirrum sem voru að versla. Þetta var svo mikið móment að hálfa væri nóg. Við drifum okkur út og á leiðinni kallar Helgi á eftir mér : Djöfulsins feita belja!! Og um leið og hann segir þetta, labbar þá ekki þessi feita stelpa á móti mér. Ég hélt ég myndi springa af hlátri. Við sóttum hann Grétar því við vorum að fara í bíó ásamt Gaua, Jökli og Kella. Við fórum á myndina Omen og varð ég fyrir smá vonbrigðum. Samt alveg ágætis mynd, en hún endaði svolítið asnalega. Svo var bara farið heim til sín og hér er ég að klóra mér í pungnum og blogga eins og einhver hálfviti.

Djöfull hlakkar mér til næstu helgi. Ég er að fara til Akureyrar að hitta hann Steina vin minn. Svo auðvitað er fullt af örðu fólki að fara þessa helgi því það eru Bíladagar akkurat þessa helgi. Ég er mikið að spá í því að fara aðeins fyrr til Akureyrar, eða svona bara á fimmtudeginum, þar að segja ef ég næ að redda mér fríi í vinnunni.

Verð að segja ykkur frá einu góðu mómenti sem átti sér stað í vinnunni minni á föstudaginn. Við vorum að fara yfir frísvæðið í vinnunni og telja það (Frísvæði er svona svæði eftir talningu og eru hlutir þar sem við þekkjum ekki eða eru ónýtir). Svo fann ég einskonar feiti í túpum og kannaðist enginn við þetta feiti. Við vorum búnir að fletta uppí tölvunni hvað þetta væri vorum við ekkert að finna þetta. Þá kallaði ég yfir vinnuhópinn.... Hafiði prufað að athuga hvort þetta heiti ekki bara "SiggiFeiti"!! :D hahaha, það er nefnilega einn gamall spikfeitur gaur sem vinnur með okkur. Það var mikið hlegið og sem betur fer heyrði kallinn þetta ekki.

Ég hef verið að spá í orðinu Veðri og líka orðinu Verði. Ég veit ekki hvort þetta sé eitthvað einsdæmi með mig, en ég er alltaf að rugla þessum orðum saman. Þá sérstaklega þegar ég ætla t.d. að segja : Hey þetta er á góði veðri...nei ahh veðri, DJÖFULL Verði. Hafið þið lent í þessu?? Ég á rosalega bágt með að segja þetta og skil ég bara ekki afhverju og þarf ég alltaf þvílíkt að vanda mig þegar ég er að segja þetta orð.

Ég var að skoða eldgamlar myndir af mér sem ég var að finna á einhverjum disk og veit ég ekkert afhverju þessar myndir voru á þessum disk. Mér þótti þetta rosalegur fengur fyrir mig og gaman að sjá hvað maður hefur breyst pínu lítið. Ef ykkur langar að sjá myndirnar í stærri formi þá er ég búinn að setja þær inn í "Myndir" hér á þessari síðu lengst uppi til hægri. Ég er líka búinn að setja myndirnar inn frá síðustu helgi.

Kveðja GummOn
Guđmundur Jónsson

::.Einum of góđ ferđ

06. júní 2006 klukkan 07:26
Ég veit eiginlega ekki hvar ég á að byrja á þessu bévítans bloggi því ég blogga svo sjaldan. En ef ég á að byrja einhversstaðar ætla ég að byrja að segja frá þessari frábæru helgi. Maður er eiginlega bara að átta sig á því að sumarið er loksins komið og vonandi verða helgarnar sem eftir eru af þessu sumri eins skemmtilegar og þessi helgi.

Á föstudaginn hélt ég smá staffadjamm í vinnunni minni eftir vinnudaginn. Við strákarnir, allir þessir "ungu" hittumst á Smiðjuveginum þar sem við komum okkur fyrir og drukkum bjór og grilluðum í sól og blíðu. Eftir alveg dýrindis mat þá fórum við inn röbbuðum þar saman meðan við sötruðum í okkur bjór. Eftir það þá var farið til hans Heimirs. Ég, Danni og Heimir héldum áfram drykkjunni heima hjá Heimi og hlustuðum á tónlist og töluðum saman. Svo kom fyrrverandi konan hans Heimirs og sótti okkur og henti okkur niðrí bæ. Við komum við inná nokkra staði og tjúttuðum alla nóttina. Ég reyndar týndi Danna og Heimi og varð eftir með nokkrum félögum og vinum. En svo var maður kominn heim rosalega seint um morguninn og var ég alveg gríðalega skrautlegur.

Laugardagurinn var alveg hrikalegur þegar ég vaknaði í minni ROSALEGUSTU þynku í öllum heiminum og einhver glamrandi í gluggann hjá mér. Ég nennti enganveginn að fara upp og opna því hausinn minn var gjörsamlega að springa. Svo allt í einu kom einhver inn í herbergið mitt og það var enginn annar en hann Helgi og Grétar, og vitir menn....þeir brutust bara inn til mín!! Þeir rifu mig á fætur eftir erfiða útreið og ég klæddi mig í föt loksins og tók eitthvað af drasli í tösku. Ég fór bara beint inn í bíl og taldi mig vera bara nokkuð hressann eftir allt ógeðið um morguninn. Við byrjuðum á því að fara í Nóatún og keyptum okkur eitthvað á grillið. Gaui bróðir reddaði því að sjálfsögðu handa okkur og vorum við náttúrulega sáttir með það. Á meðan strákarnir versluðu mat, var ég eiginlega allann tímann inná klósetti, því ég var svo hrikalega slappur. Helgi hringdi svo loks í mig og ég fór bara beint í bílinn og steinsofnaði. Við lögðum svo loks af stað...reyndar stoppuðum við á Esso og ég bað Helga að kaupa Magic fyrir mig og hann gerði það. Ég þambaði hann í mig og ég hresstist alveg gríðalega við það. Við fórum á tveimur bílum, ég, Helgi og Jói fórum á Galantinum hans Helga og Jökull og Grétar voru saman í öðrum bíl. Á leiðinni var mikið sungið og sumir urðu hásir. Þegar við vorum komnir í Hvalfjörðinn og vorum að fara að borga í gönginn, þá settum við ,,Raining Man,, allt í botn og allir gluggar skrúfaðir niður ásamt því að topplúgan var opinn og við syngjandi eins og fífl. Afgreiðsludaman skildi ekki neitt í neinu og hún gat ekki annað en hlegið af okkur því við vorum svo miklir bjánar. Á leiðinni stopuðum við í Hyrnunni, eða Borgarnes og fengum okkur eitthvað aðeins í gogginn, því við erum náttúrulega feitar beljur.

Eftir að hafa keyrt í nokkra klukkutíma og drukkið nokkra bjóra vorum við komnir Vestur þar sem við ætluðum að tjalda. Við byrjuðum samt á því að heilsa uppá öllu fólkinu, eða mömmu og pabba hans Helga og einhverju fjölskyldupakki hans Helga. Svo reistum við tjöldin sem við komum með, Jói kom með alveg risastórt tjald og ákváðum við bara að lúlla allir saman í því. Ég var búinn að kaupa svona partýtjald sem var algjör snilld að vera í, því hann Jökull var svo mikill snillingur og kom með svona hitara sem hitaði upp partý-tjaldið. Svo héldum við bara áfram að drekka og kveiktum á grillinu því við vorum bara orðnir nokkuð svangir. Meðan við grilluðum tók hann Jökull upp Kartöflu-byssuna sína...hahahah já þið lásuð rétt!! Jökull er svo brenglaður að hann bjó til einhverja þvííÍílíka byssu sem skítur kartöflu og krafturinn í þessari byssu var ROSAleg. Svo var komið að matnum og átum við þessa dýrindis steik og sver það að þetta var besta steik sem ég hef sett uppí mig. Allir rosalega sáttir með steikina og fórum við í partý-tjaldið eftir góðan mat. Helgi og Jói tóku upp gítarana og fórum við að syngja. Helgi var svo sniðugur að hann bjó til svona söngtexta þar sem við gátum allir sungið saman. Svo komu fjölskyldumeðlimir Helga inn í partý-tjaldið og sungu með okkur nokkur lög. Svo fóru allir í háttinn en við vorum ekki alveg á því að fara í háttinn og fengum við okkur smá göngutúr í geðveiku veðri um nóttina.

Á leiðinni flaug hann Jói á hausinn og var mikið hlegið af því...því það var einum of kjánalegt. Svo fóru Helgi og Grétar á einhverja jafnvægisslá og voru að hrinda hvorum örðum niður af slánni og þótti okkur það mjög fyndið. En topp-punktur kvöldsins var að þegar Helgi manaði hann Grétar í að fara vaða í sjónum yfir á einhverja eyju sem var sirka 50 metra frá okkur. Grétar tók ekkert alltof vel í það. En Helgi fór eitthvað aðeins úr fötunum og byrjaði að vaða. Grétar var sko ekki sáttur og klæddi sig úr...og ekki bara úr....heldur úr ÖLLU. Það var svo ógeðslega fyndið að ég, Jói og Jökull grenjuðum alveg úr hlátri. Helgi var hálfnaður og snéri svo við því honum leist ekkert á blikuna. Grétar vann þetta og fór alveg yfir...NAKINN hahahaha..!! Þetta var einum of gott. Svo löbbuðum við eitthvað aðeins lengra og fórum að þeyta kellingar, og örugglega í svona hálftíma. Við vorum þá orðnir bjórlausir og fórum aftur að tjaldbúðunum og drukkum aðeins meira og sungum líka aðeins meira. Þegar klukkan var orðinn alltof margt þá fórum við í háttinn vegna þreytu. Grétar mátti eiga það að vera fullastur af okkur öllum þetta kvöld.

Sunnudagurinn var hálf asnalegur en góður. Helgi vaknaði fyrstur og þurfti að fara í einhverja fermingu. Á meðan sváfum við lengur. Eftir góðan svefn var farið inn í bústað og étið morgunmat. Þar vorum við strákarnir að spila og rabba saman. Jökull var í einhverjum góðum hugleiðingum að sprengja bíla og hella sýru á fólk meðan Grétar og Jói voru að klappa Sófa...ööö já það er kanína sem systir hans Helga á!! Svo loksins kom Helgi aftur og við fórum út og klæddum okkur í vinnuföt. Við vorum nefnilega að fara hjálpa pabba hans Helga að moka holu og einhvern skurð. Það gekk frekar brösulega því jarðvegurinn var frekar leiðinlegur og steinar útum allt. Á meðan við mökuðum holuna vorum við að sjálfsögðu með bjór í hendinni sem pabbi hans Helga splæsti á okkur. Þegar við vorum langt komnir átti Grétar Golden-Móment dauðans. Hann var með stunguskóflui og var að hoppa á skóflunni til að komast í jörðina, það vildi ekki betur til en að skóflan fór beint í stein og Grétar flaug af skóflunni og datt og rúllaði alla leið ofan í holuna og á skófluna hans Jóa. Það kom alveg svona þögn á hópinn og Grétar stóð upp geðveikt vandræðalegur. Helgi spurði hann hvort það væri ekki allt í lagi með hann og Grétar alveg jújú allt í fína hjá mér. Á meðan hann sagði þetta þá lak blóð niður af hausnum hans og niður ennið. Hann fékk smá skurð á ennið kallgreyið....en svo þegar hann var búinn að búa um sárið kom hann aftur og þá var sko mikið hlegið af þessu því þetta var svo rosalega kjánalegt. En svo loksins þegar við vorum búnir með skurðinn og holuna grilluðum við og átum af mikilli gleði og drukkum að sjálfsögðu ískaldan bjór.

Eftir matinn tók Helgi okkur á smá rúnt í sveitinni og skoðuðum við margt og mikið og fórum upp á einhvern risastóran stein. Við vorum reyndar ekkert svo lengi á rúntinum þar sem Helga langaði að halda áfram að drekka, þannig við fórum bara í partýtjaldið og fórum að syngja og drekka meiri bjór. Við tókum einhvern sófa inn í partýtjaldið sem var bara nokkuð góður þar inni. Svo hóaði fólkið í okkur og buðu okkur inn þar sem við tókum gítarana með okkur og sungum ennþá meira. Við sömdum eitt lag sem var mikið sungið. Ruddinn var svo tekinn upp og allir fengu sér rudda. Grétar var orðinn ekkert smá fullur og var ýkt strjarfur og horfði eitthvað svona útí loftið og sagði svo upphátt....ég er að deyja, ég ætla inní tjald og deyja!! Jökull fylgdi honum inní tjald og drapst hann í tjaldinu. Jökull fór að pissa og á leiðinni ætlaði hann að kíkja á Grétar og athuga hvort allt væri ekki í lagi og kallaði á hann. Jökull heyrði bara í Grétari...Hjálp...hjálp!! Jökull kíkti inní tjaldið og þá var hann Grétar kallinn búinn að æla yfir sig allann...hehe kallgreyið. Jökull var rosalega góður við hann og þreif allt upp eftir hann. Jói var orðinn eitthvað þreyttur og fór að lúlla á meðan ég, Helgi og Jökull vorum inní partý-tjaldi að drekka og fá okkur rudda og syngja. Svo fóru þeir hálfvitarnir að spreyja hárlakki á sig og kveikja í.....þvílíkar steikur. Grétar lá í sófanum hjá okkur og var...já ekkert sérlega vel vakandi. Svo kom bara alltíeinu þetta brjálaða veður og Partý-tjaldið fór bara í HÖNK...við forðuðum okkur bara inní stóra tjaldið hans Jóa og vorum þar bara inní fortjaldinu að drekka. Aðalbrandarinn var að Helgi kallaði alltaf á Grétar og Grétar hömmaði alltaf eitthvað jááá og þá sagði Helgi...Þegiðu!! Það þótti okkur eitthvað svo hrikalega fyndið. Svo þegar klukkan var orðinn eitthvað um 6:00 þá var Helgi alveg að sofna og sofnaði svona 8 sinnum sitjandi í stólnum. Þá ákváðum við bara loksins að fara í háttinn og steinrotuðumst.

Daginn eftir vökunuðum við gríðalega hressir...eða hitt og heldur. Ég var síðastur á lappir og voru allir inni að éta. Ég fékk mér svo líka að éta og fórum við svo út og gengum frá eftir okkur og pökkuðum tjöldunum saman. Þegar klukkan var orðinn 17:30 lögðum við af stað heim og stoppuðum við tvisvar á leiðinni og fengum okkur að éta því við vorum ýkt svangir, greddan alveg í hámarki hjá sumum og sumir voru að framleiða naflakusk.

En ég vil bara þakka strákunum KÆRlega fyrir ótrúlega skemmtilega helgi og leiðinlegt að Gaui kallinn gat ekki komið með okkurþví hann missti svo sannarlega af geðveikri helgi. Við ætlum að fara aftur þarna í Júlí nema hvað að við ætlum þá að hafa það sem veiðiferð og fara veiða og ætlum við að reyna að draga sem flesta með okkur í þá ferð og get ég lofað ykkur geðveikri ferð.

Það fara fljótlega að koma myndir inná síðuna, en ég er bara að bíða eftir myndunum frá honum Jökli og læt ég vita þegar ég er búinn að dæla þeim inn. En ég ætla ekki að hafa þetta lengra í bili og kveð ég ykkur bara..

Kveðja GummOn
Guđmundur Jónsson

::.Vinnuhelgi

29. maí 2006 klukkan 07:09
Ég tók nú bara nokkuð létt á því þessa helgi og vann bara á Sólon. Það var nú kannski bara alveg ágætt þótt mig langaði náttúrulega svolítið mikið til að drekka, sérstaklega þá á laugardeginum. En að gera langa sögu stutta ætla ég bara að segja eitthvað lítið frá helginni því hún var eitthvað fremur róleg....eða Rólex eins og ég vil orða það.

Á föstudaginn fór ég bara að vinna, vann næstum því í sólahring eða um 22 tíma. Ég var að vinna í Vatnsvirkjanum til að verða 19:00 og fór svo heim og klæddi mig í önnur föt og beint á Sólon. Ég hitti eitthvað af fólki þetta kvöld, meðal annars Gaui, Ívar, Grétar og hinn grautfúla Ingvar. Getur vel verið að ég hitti einhverja fleirri, en ég man bara ekkert þessa nótt þar sem ég var bara illilega steiktur. Þegar ég var búinn að vinna fór ég bara beint á Gaukinn...en á leiðinni var ég stoppaður af löggunni. Var að sjálfsögðu pínu grunsamlegur en sem betur fer var ég ekki búinn að fá mér sopa. Svo labbaði ég inná Gaukinn þar sem ég ætlaði að hitta Grétar, Ívar og Gaua. Ég var búinn að bjóða þeim far heim og við fórum bara út. Ég skutlaði Ingvari heim og fannst mér hann frekar dónalegur...ekki það að ég vildi ekki skutla honum heim...en hann settist bara inní bílinn minn án þess að spurja mig hvort ég vildi skutla sér, svo var hann líka búinn að vera bitur allt kvöldið!! Ég veit allavega ekki hvað ég hef gert honum, en mér finnst ég ekki eiga það skilið. En svo skutlaði ég að sjálfsögðu Grétari, Gaua og Ívar heim með glöðu geði þar sem þeir voru búnir að biðja um far.

Á laugardeginum var allt óákveðið. Ómar hirngdi í mig þegar ég var að vakna og bauð mér í útskriftarveisluna sína og víst hann hringdi í mig svona persónulega varð ég að sjálfsögðu að kíkja á hann. Ég átti að fara mæta í vinnuna á Sólon klukkan 20:00 en ég fékk eitthvað frest á það til klukkan 00:00. En eftir símtalið fór ég strax að redda gjöfinni hans Ómars og eins og ég er svo steiktur þá keypti ég handa honum 30 kíló-a Sleggju.. hahaha og rammaða myndir af honum úr bústaðnum 2004 eftirminnilega þegar hann fór í einhver fáranleg föt!! Ég drakk alveg 7 bjóra þarna plús góðan mat. En það versta við þetta allt saman að ég þurfti að fara að vinna. Mér langaði svo hrikalega að vera þarna lengur og drekka með krökkunum. Ég fékk hana Oddrúnu til að skutla mér í vinnuna á bílnum mínum í vinnuna. Takk Oddrún ;* og Ómar fyrir boðið ;) :* ....Þetta byrjaði ekkert alltof vel í vinnunni minni en ég var alveg að meika það í að brjóta glös hahah....kannski því ég var eitthvað í því. En þetta kvöld hitti ég anskoti nógu mikið af fólki að ég nenni ekki að telja það upp því fólk á bara eftir að vera hneykslað að ég nefni það ekki. En það var sko einum of mikið að gera á Sólon þetta kvöld. En ég var búinn að vinna eitthvað um 6:00 leitið og fór ég heim um að verða 7:00 og fór beint í háttinn.

Sunnudagurinn byrjaði á því að ég vaknaði klukkan 17:00 og Andri og Helgi sóttu mig. Við fórum beint á KR-völlinn að keppa okkar fyrsta leik í utandeildinni í fótbolta. Ég var í marki og hélt hreinu og varði ágætlega allann leikinn. Við unnum 2 - 0 og erum við ekkert smá sáttir með það. Eftir leikinn fór ég og sótti bílinn minn heima hjá Ómari og fór beint heim. Ég hringdi í hann Palla og ákváðum við að fara í bíó á myndina X-men 3. Palli sótti mig um 22:00 og fórum við í Smáralindina. Ívar kom svo stuttu síðar og föttuðum þegar við sátumst niður hvað væri asnalegt að við vorum bara þrír í bíó, því vanalega erum við 15 eða eitthvað. Mér þótti X-men myndinn ekkert smá góð, veit að vísu ekkert afhverju því ég fýla ekkert svona myndir, en þessi mynd kom mér virkilega á óvart og var hún ekkert smá vel gerð. En eftir bíóið fór maður bara beint heim.

Vááá.....ÞJÓÐHÁTÍÐ!!!!! Ég get ekki hætt að hugsa um þetta. Við vorum að tala um þetta áðan í bíóinu og ég er bara með fiðring í maganum að vera tala um þetta. Ég, Palli og Ívar erum búnir að ákveða það að fara á fimmtudeginum til Eyja. Helgi og Andri koma líklega á föstudeginum þar sem þeir þurfa að vinna. Mér langar bara að spurja alla konur og kalla....hverjir ætla að joina okkur til eyja?? Ég er að segja að þetta er það besta sem hefur komið fyrir mig að fara til eyja og ætla ég ALDREI að sleppa því að fara þarna. Ég veit bara að því fleirri sem við förum, því skemmtilegra verður það að vera þarna.

Okey...hver hefur heyrt bílaauglýsinguna Aygo í útvarpinu?? "Afhverju ertu ekki í buxum??....Því ég er á ÆÆÆGgóóó!!" Þetta er ein steiktasta og heimskulegasta auglýsing sem ég hef heyrt. Í auglýsingunni segir maðurinn að það kostar minna en tvennar gallabuxur að eiga Aygo og engar afborganir. Ókey.....ef þú kaupir tvennar gallabuxur í Rúmfatalagernum þá kostar það ekki nema 2.000 krónur, en ef þú kaupir buxur í Sautján þá kosta þær 40.000 krónur!! Þessi auglýsing meikar engan sens...!! En samt finnst mér ekkert jafn skemmtilegra en að segja við einhvern ef maður er spurður t.d.: Afhverju komstu ekki í partýið í gær?? Þá segir þú: Af því ég er á ÆÆggóóó!! :D STeik.iS

Jæja...ég hef ekkert meira að segja...en ég er bara orðinn hrikalega þreyttur og ætla koma mér í háttinn!! En næsta helgi?? Er einhvern einn heima or sum?? Hvort það væri séns á því að halda eitthvað grillpartý heima hjá einhverjum og drekka bjór :D

Kveðja GummOn

Guđmundur Jónsson

::.Gott djamm í gćr

26. maí 2006 klukkan 06:30
Úff, ég held að ég hafi aldrei verið jafn þunnur og ég var í morgun....ég hélt að hausinn minn ætlaði að fokking springa. En nóg um það að ég hafi verið þunnur. Í gær þá fór ég til Helga með Petsu frá Dominos og 3 kippur af bjór handa mér og Helga, ég er svo góður við hann Helga og er búinn að vera það undanfarið og er alltaf að bjóða honum uppá eitthvað. Við átum eins og svín heima hjá honum og drukkum bjór og hlustuðum á Ladda diskinn og sungum með. En þegar ég sótti petsuna þá hélt að ég yrði ekki eldri því það var GEÐVEIKI að gera og röð langt út og troðið inni og hvergi hægt að fá bílastæði. En ég lagði bara einhversstaðar í Keflavík og tróð mér svo inn og um leið og ég var kominn inn þá var kallað nafnið mitt...og ég bara JEEééss!! Var illa sáttur að hafa fengið petsuna svona fljótt...var ekki að nenna bíða þarna þangað til að ég var orðinn áttræður. En heima hjá Helga þá vorum við bara orðnir helvíti nettir og Helgi að sjálfsögðu spilandi á gítarinn. Grétar kom og sótti okkur og Kelli og einhver stelpa voru líka í bílnum. Við fórum beint heim til Jökuls þar sem við sátum og drukkum og sungum. Síðan kom einhver önnur stelpa og við fórum í einhvern drykkjuleik. En svo vildi ekki betur til en að einhver illindi brást í leikinn og Grétar rauk bara heim til sín í einhverri fýlu útaf einhverju kjaftæði...setti svolítið leiðindarsvip á kvöld. En vonandi er allt í góðu núna. Við héldum þó áfram að drekka og stelpurnar fóru ásamt Kella. Greyið Jökull var eitthvað svo slappur að hann fór ekki með okkur niðrí bæ og ákváðum við ég, Helgi og Gaui að skjótast heim til hans Gaua og halda áfram þar. En Jökull keyrði til Gaua og bauðst til að skutla okkur nirðí bæ og viljum við þakka honum kærlega fyrir það.


Gaui, ég og Helgi hressir í gær


Við byrjum á því að fara á Glaumbar og var enginn þar. Skutumst yfir á Gaukinn og þar var enginn. Nema hvað að á dansgólfinu kom upp eitthvað vesen milli Gaua og einhvers gaurs...veit ekki alveg hvað skeði en hann rauk eitthvað og náði í fullt af fólki og þeir komu bara allir til okkar og var þar einn geðveikt fínn strákur sem heitir Adam og róaði þetta niður. Fýla svona gaura sem róa eitthvað svona kjaftæði því þessi gaur átti samt sem áður skilið að vera laminn...en hann var bara heppinn. Við drulluðum okkur útaf þessu helvítis 10.bekkjarstað það sem allir krakkarnir hópa sig saman og drekka. Við fórum bara beint á Sólon og beint á barinn. Mig minnir að ég hafi boðið Gaua uppá bjór og skot. Helgi fór bara frá okkur því hann átti að fara vakna klukkan 8:00 í vinnuna og skildum við hann ósköp vel. Við fengum okkur sæti og drukkum okkar bjór. Svo sat einhver stelpa við hliðiná mér og byrjaði bara tala eitthvað á ensku og spurði hana hvort hún væri ensk og svaraði því játandi og þá sagði ég.....ertu fokking samkynhneigð?? haha...svo bara sprakk ég úr hlátri, veit ekkert afhverju ég sagði þetta við hana og hún sagði bara WhaT og var ekkert að skilja mig. En svo fór ég bara að tala við hana á fullu og ég komst að nokkru meðan ég var að tala við hana:
  1. Hún var svört...
  2. Hún var 31 árs...
  3. Hún var búinn með Háskóla...
  4. Hún var barnalæknir...
  5. Hún vissi ekki hvað handbolti er...
  6. Henni fannst Handboltaskotið mitt MJÖG gott...
  7. Hún var frá Ameríku...
  8. Hún var frá Chicago...
  9. Henni fannst ÉG tala virkilega góða ensku....WTF??
  10. Hún var að reyna við mig á fullu...
  11. Hún var að reyna komast inná mig...
  12. Hún vildi fá mig með sér uppá hótelherbergi...
Ég veit ekki....mér þótti þetta frekar fyndið. Ég sagði bara nei, ég væri ekki svona auðveldur og hún fór bara. hahah hversu steikt. Ég veit ekki....Kalli Bjarni bara! En svo hitti ég hana Evu gellu og var bara með henni og dansa. Gaui var ekki að nenna þessu stelpustandi mínu og hann kvaddi mig bara bless og fór. Ég var með ekkert smá mikið samviskubit að hafa bara skilið hann eftir. En hann er búinn að segja mér að allt sé í góðu og þykir mér það gott að það sé enginn illindi á milli okkar því hann er náttla frábær kauði!!

En í kvöld var skellt sér í bíó á mynd með Hugh Grant og Mandy Moore ásamt fullt af góðum leikurum. Myndin hét American Dreams og var hún bara þó nokkuð góð, bjóst við meiru en samt ágætis mynd. Ívar, Lóa, Hjalti, Rafn, Nanna, Ómar og Oddrún mættu í bíóið og vil ég þakka þeim fyrir bíóið. Eftir bíóið fór ég svo til hennar Lilju. Hún er að fara New York á morgun og var ég bara að lána henni stafræna myndavélina mína. Ohh hvað ég er góður. Líka ágætt að fá að sjá hana aðeins áður en hún fer út. Góða ferð Lilja mín.

Ég horði á Meistarann í kvöld og hann Jónas vann. Djöfullsins snillingur er þessi gaur. Ég hélt svo innilega með honum því þoli ekki stelpuna sem var að keppa á móti honum, reyndar veit ég ekkert afhverju. Skemmtilega við þetta allt saman, er að á laugardaginn þá var ég að djamma og hann var í sama partýi og ég. Ég talaði alveg helling við hann og er þetta frábær náungi. En svo þegar við vorum að fara í bæinn skutlaði Jökull okkur og honum vantaði far og fékk að vera í skottinu á Renault Megane hahaha....það var sko of fyndið. Við keyrðum niður laugarveginn og hann í skottinu og við vorum öskrandi á fólk um að við værum með gaurinn sem er í úrslitum í meistaranum. Fólk var bara WTF???? og þau vildu alltaf sönnun og við stoppuðum bílinn og sýndum fólkinu. Þetta var ekkert smá fyndið og það sem gerði þetta enn skemmtilegra var hláturinn hans Gaua. Hláturinn hans er svo hrikalega smitandi að þegar hann hlær þá getur maður ekki annað en hlegið með.

Þessa helgi þarf ég að vinna á Sólon. Er einhvernveginn ekki að nenna því, en þarf samt að gera það. Ég er að vona að þetta verði mín síðasta helgi, því ég er ekki að sjá fram á það að ég geti unnið einhverjar helgar í sumar. Það er svo endalaust að gera hjá mér í sumar að ég hef ekki tíma í einhverja vitleysu að þurfa redda mér alltaf fríi. En ég ætla samtsem áður að reyna ekki alveg að hætta. Taka að mér einhverjar vaktir og halda svo bara áfram í haust þegar sumarið er búið og ég kominn ýkt brúnn og sætur frá Tenerife.

Ungfrú Ísland var í gær. Ég reyndar sá ekki keppnina sjálfa, en hún Ásdís vinkona mín lenti í öðru sæti og er ég ekkert smá stoltur af henni. Hún er bara endalaust sæt og átti svo skilið að lenda svona ofarlega. En eitt af fyndnari atvikum átti sér stað þarna þegar Unnur Birna datt.....hún datt ekkert hún hreinlega FLAUG á hausinn. Ég gat ekki annað en helgið af þessu og samt á sama tíma hálf vorkennt henni. Æji hún samt slapp alveg heil og brotnaði ekki eða eitthvað slæmt.

Jæja þá er ég loksins kominn með símann minn aftur. Ég er ekki búinn að vera með hann í 4 daga og var hann líka batteríslaus þennan allann tíma. Ég gleymdi honum á Sólon á Sunnudaginn og við vorum komnir í bílinn hans Gaua og ég var alveg ,,Hvar er síminn minn??" Ég bað Gaua um að hringja í hann fyrir mig og þegar Gaui er að hringja þá byrjar hann að tala geðveikt alvarlegur: ,,Halló, hver er þetta eiginlega....HALLÓ?!" Svo fattaði hann hvað væri í gangi og skellti og sagði fokkaðu þér Gummi. ahahahaha þá var hann að tala við talhólfið mitt!! Híhí...Gaui þú ert ágætur kappi.

En jæja....ég ætla ekki að hafa þetta lengra þar sem ég er búinn að blogga ALLTOF mikið og þið nennið eflaust ekkert að lesa þetta allt saman. Bara eigið góða helgi og þangað til næst bara....

Kveðja GummOn
Guđmundur Jónsson

::.Snilldar helgi

23. maí 2006 klukkan 04:47
Jæja...soldið langt síðan að ég bloggaði síðast. Þetta er bara alltaf svona þegar sumarið er að ganga í garð þá blogga ég bara ekki neitt, eða allavega mjög lítið. En ég skal samt reyna mitt allra besta, samt ekki eins og hann Gaui kallinn það er eitthvað að þeim manni (á góðan hátt) hann er bara alltaf að blogga og bloggar liggur við þrisvar á dag og alltaf þessar þvílíkar ritgerðir. Gaui....þú ert ágætur ;-) hehe.....

En snúum okkur að helginni. Ég var búinn að bíða þvílíkt spenntur eftir þessari helgi enda Júróvision og er alltaf jafn gaman að drekka og horfa á þessa vitleysu. En á föstudeginum var ég bara að hjálpa honum Gaua bróðir að mála íbúðina hans. Hann er náttúrulega svo mikill snillingur að hann keypti kassa af bjór og við drukkum bara bjór á meðan við máluðum. Eftir að hafa verið að djöflast heima hjá honum og klukkan var að verða tólf ákvað ég bara að kíkja aðeins í bæinn og hitta hann Ívar kallinn. Ég fór beint á sólon og hitti þar Ívar og einhverja krakka. Ég fór auðvitað á barinn og fékk mér að drekka. Og svo var Rikki að spila uppi og var ég bara með honum allt kvöldið alveg til lokunnar. Ég fór að vísu á Hverfisbarinn þar sem ég ætlaði að hitta Önnu vinkonu mína en svo var hún bara farinn heim þannig ég dreif mig bara aftur á Sólon.

En á laugardaginn vaknaði ég líka með þenna helvítis hausverk....og ég er ekki að grínast að ég hélt að hausinn á mér væri að fokking SPRINGA að ég hélt fyrir eyrun.... okey þetta var glatað!! En ég var með alkaseltser í vinstri hendinni og panodil í þeirri hægri. Ég heyrði svo fljótlega í honum Rikka og ætlaði hann að koma sækja mig því við vorum að fara í fótbolta. Ég fór bara í tölvuna mína og setti góða tónlist á og hækkaði allt í botn, og vitir menn ég hresstist bara við það ef eitthvað er. Svo kom Rikki og við drifum okkur út á fótboltavöll. Ég var eini gaurinn sem mætti þarna í stuttbuxum og stuttermabol og var líka eini gaurinn sem endaði með 40 stiga hita því það var ógeðslega kalt, að ég ætlaði að fara pissa þegar ég var kominn heim en ég fann ekki typpið á mér, hann varð bara að engu eftir þennan kulda. En eftir þessa æfingu fór maður bara heim í sturtu og gerði sig klárann fyrir kvöldið. Ég, Halli og HelgiÉg sótti Helga og Halla og fórum svo heim til mín. Reyndar vorum við bara stutt hér heima því júróvisjon var byrjað og við létum hann Gaua sækja okkur. Hann kom á eðalvagninum sínum og við fórum á Eika Feita og borðuðum þar 2 hamborgara á mann....feitir gaurar Eiki feiti hvað?? En svo fljóttuðum við okkur bara heim til hans Gaua þar sem Jökull, Kelli og einhverjar stelpur voru heima að horfa á Júróvisjon. Við náðum ekki nema 10 sek. af finnska laginu en við héldum með Finnlandi og Litháen. Eftir að hafa horft á Júróvisjon og drukkið nógu anskoti mikið var komið fullt af liði heim til hans Gaua fórum ég, Gaui og Jökull á smá rúnt. Náðum þar að meðal í miða á eitthvað ball á Broadway og skutluðum einhverri stelpu heim til sín eða eitthvað já kalli. Á leiðinni keyrðum við framhjá einhverju partýi þar sem fullt af litlu krökkum voru að drekka. Ég og Gaui fórum að sjálfsögðu til þeirra þar sem við ætluðum að rugla eitthvað í þeim og sögðumst vera ýkt frægir gaurar og eitthvað bull :D þetta var bara fyndið. En já svo var haldið í bæinn eftir að hafa klárað heila Jagermaster flösku, Amaretto flösku og heila kippu af bjór. Af því sem ég man fórum við náttúrulega á þetta Nóatúnsball en við vorum að vísu ekki lengi þar og fórum svo bara beint á Sólon. Váááá ég hitti sko alltof marga. En þar sem ég var alveg útur kortinu man ég EKKERT. Man bara í endan á kvöldinu fékk ég far hjá einhverjum gaur á einhverjum húsbíl?? WTF....ég veit ekkert afhverju og var þetta ekkert smá flottur húsbíll, eða hvort þetta hafi verið rúta. ÆJi....ég man ekki alveg :D hahah....

En ég vil þakka þeim krökkum sem ég hitti þetta kvöld kærlega fyrir, því þetta var ekkert smá gaman og þá sérstaklega heima hjá Gaua. Hlakka illilega til næsta djamms sem verður vonandi bara sem fyrst.

En á Sunnudeginum vaknaði ég ekkert smá hress....ekkert þunnur, bara eiginlega fullur eða eitthvað ennþá. Ég fór til Helga og sagði honum að koma og fá okkur að éta einhversstaðar. Hann átti náttúrulega engan pening þannig að ég bauð honum bara útað borða á Sólon. Eftir að hafa étið einhverja tvo rétti og einn bjór fórum við upp í einkasamkvæmi Helga og Gumma sem var haldið uppi. Þar horfðum við á fótbolta leik og svo NBA og drukkum bjór. Við vorum báðir bara orðnir semmmíí fullir og töluðum alveg helling saman. Svo kom Gaui kallinn og hitti á okkur og fórum við svo á einhvern rúnt og Gaui var stoppaður af heimskri löggu sem hélt að hann væri á Toyotu. En svo var ég svo heppinn að ég fékk hann Ívar til að koma að hitta okkur og Dísa var með honum ásamt Lóu og ég fékk hana Dísu til að keyra bílinn minn heim, Takk Dísa mín ;) Og svo var bara farið heim að sofa....eða svona næstum. Ég held virkilega að ég hafi skrifað á mig fyrir heilar 12.000 krónur á Sólon í gær....hversu heimskur get ég verið :D

En ég var að spá því að það er einhver frídagur á fimmtudaginn hvort fólk ætli að djamma á miðvikudaginn? Ég væri alveg game í það að fara á eitthvað flipp og vera ýkt ölvaður. Endilega Commentið og tjáiði ykkur um þetta...!!

Kveðja GummOn
Guđmundur Jónsson

::.Helgin fljót ađ líđa

15. maí 2006 klukkan 05:23
Þá er þessi helgi liðinn sem er jú kannski bara ágætt því maður var enganveginn að nenna að vinna á Sólon þessa helgi. Það var nú ekkert svo mikið að gera í bænum í gær að mínu mati og hitti ég nú þó nokkra kunningja mína. Mér finnst þó frekar fyndið að þegar fólk kemur til mín og er að snýkja af mér af barnum og svo kannski bíð ég þeim uppá glas, svo bara hverfur fólkið án þess að segja bless við mann og er þetta ekki í fyrsta skipti!! En samt svona einstaka sinnum eru nokkrir sem kveðja Gaui og Palli mega eiga þann heiður á því. Handboltaskotin mín eru gjörsamlega að fara hamförum helgarnar sem ég er að vinna. Ég fékk mér eitt í gær bara til að smakka þetta svona edrú og verð ég að segja að þetta er snilldar skot. Ég held að ég selji yfir 50 skot á hverju kvöldi eða allavega ekki undir 30 og allir þvílíkt sáttir með þetta!!

En nú er ný vika framundan og verður nóg að gera. Gaui bróðir og Elín systir eru búinn að fá afhenda íbúðina sína og ætla ég að vera duglegur að hjálpa til að mála og flytja. Dagurinn í dag fór þó aðalega í það að hjálpa til og lýst mér ekkert smá vel á þessa íbúð hjá þeim. Dagurinn hjá systir minni byrjaði þó ekki vel en hún var að rembast við að ná einhverjum nagla úr veggnum í höfuðhæð og vildi ekki betur til en þegar naglinn drullaðist loksins út eftir einhvern hamagang og hamarinn fór beint í andlitið á systu, með þeim afleiðingum að önnur framtönnin brotnaði í tvennt. En það er nú búið að laga þetta sem betur fer og getur Elín byrjað að hlægja aftur eins og hún er vön að gera. En á fimmtudaginn ætla ég að horfa á Undankeppni Eurovision. Ég vona svo innilega að hún Silvía okkar komist áfram í aðalkeppnina því maður varð náttúrulega fyrir þvílíkum vonbriðgum þegar Selma komst ekki áfram í fyrra. En svo næstkomandi laugardag verður útskriftarveislan hans Ægirs. Ég og hann Helgi ætlum svoleiðis að hrynja í það og vera ekki með sjálfum okkur því það er svo langt síðan að maður sleppti gjörsamlega af sér beislunum og verður það ansi skrautlegt....já vonandi allavega.

En ég nenni ekki að blogga meira því það er ekkert meira svosem að frétta því maður er að vinna alla daga og allar nætur og maður getur því ekki gert RASSgat. En ég varð Deildarmeistari og Reykjarvíkurmeistari í síðustu viku og er því þrefaldur meistari í handbolta, ekki amalegt að enda tímabilið sitt svoleiðis.

Kveðja GummOn
Guđmundur Jónsson

::.Blogg í kvöld

12. maí 2006 klukkan 01:38
Vááá það má segja að þessi dagur sé bara eitt stórt afmælispartý....því nú í dag eiga tveir mjög góðir vinir mínir afmæli, ein frænka mín og svo auðvitað íþróttafélagið Valur. Ég ætla koma með eitt helvíti heitt blogg seinna í kvöld því ég hef svo margt að segja ykkur dúllurnar mínar ;-) Þangað til......

Kveðja GummOn
Guđmundur Jónsson

::.Ekkert ađ gerast

10. maí 2006 klukkan 05:55
Hæíí kæru lesendur!!

Ég vil byrja þetta blogg á því og afsaka bloggleysi mitt. Ég hef hreinlega ekki nennt að blogga undanfarna daga, ég hef alltaf ætlað að blogga en svo hætt við, en einhvern veginn drullaðist ég núna til að blogga. Djöfull er búið að vera frábært veður núna undanfarna daga, ég á bara ekki til eitt einasta, reyndar er maður að vinna allann liðlanga daginn inni, en maður reynir nú yfirleitt að fara út og gera eitthvað úti í vinnunni.Ég, Daði og Skorri Ég er að fara keppa á morgun og það á móti Haukum og er það úrslitaleikur Deildarmeistaratitilinn (hvernig sem það er nú skrifað). Leikurinn er klukkan 18:30 fyrir ykkur sem langar að sjá leikinn en hann verður í Digranesi á móti Haukum og ætlum við að taka þá aftur, og svo að öllum líkindum verður leikur á föstudaginn og er það annar úrslitaleikur og það á móti ÍR um Reykjavíkurmeistaratitilinn. Úff....já það má segja að það sé nóg framundan í handboltanum en þegar þessir leikir eru búnir er bara allt búið hjá mér í handboltanum og verða bara léttar æfingar eftir. Við strákarnir í handboltanum (2.flokk) erum að plana að fara allir í sumarbústað yfir eina helgi þar sem Darri kallinn ætlar að leyfa okkur að fara í einhvern bústað sem mamma hans og pabbi eiga. Það verður örugglega algjör snilldin eini að fara á smá sprell með strákunum.

En núna þessa helgi verð ég að vinna bara á Sólon. Ég er eiginlega bara feginn að fara vinna því ég er búinn að heyra að allir ætla að djamma og ég er bara enganveginn í neinu stuði til að fara að drekka og á eitthvað djamm, frekar bara að vinna þessar tvær nætur...fá pening...og vera ekki þunnur!! Svo er það Eurovision þarnæstu helgi og þar ætlum ég og Helgi að taka almennilega á því þessa helgi....vá hvað ég sagði oft helgi!!En reyndar verða held ég allir að djamma þessa blessuðu helgi því það er Eurovision útskriftarveislur og allir búnir í prófum. Ég fer til hans Ægirs þar sem hann er að útskrifast úr Borgó og ætlar hann að halda feitt Eurovisionútskriftarpartý!! En ég er ætla mér að hætta á Sólon í sumar...reyndar þori ég ekkert að segja yfirmanninum mínum það því það er nú bara ágætis mórall í vinnunni og allir eitthvað svo skemmtilegir, en þar sem ég verð svo hrikalega upptekinn í allt sumar verð ég hreinlega að hætta, en gæti samt vel farið svo að ég taki þá einhverjar helgar í sumar og byrji svo bara strax eftir Tenerife-ferðina. En talandi um Tenerife ferðina....það eru ekki nema 91 dagur!!! Shiturinn Titturinn, ég er bara ekki alveg að ná þessu. Ég kláraði að borga ferðina síðasta fimmtudag og þvílíkur léttir að vera búinn að því áður en að verðið hækkar.Flottir Íslandsmeistarar 2006

Þetta var nú ekkert merkilegt blogg og var ég eiginlega ekkert að nenna að blogga í þetta skipti því kallinn er nokkuð þreyttur bara. Ég er búinn að fara á MI3 og Scary Movie 4 og þótti mér þær báðar bara mjög góðar, eða það má segja að þær báðar hafa staðist undir væntingum mínum....ég gat ekki hætt að hlægja þegar var verið að gera grín af einu atriði í Scary Movie 4 þegar allir voru að hálsbrotna....segji ekki meir!! :D Þið vitið hvað ég er að meina þið sem eruð búinn að sjá hana ;-) Vildi líka bara láta ykkur vita að ég er búinn að setja fleirri myndir inná hjá mér.....og fyrir ykkur sem vitið ekki hvar myndirnar mínar eruð (Lilja) þá er það efst uppi til hægri "Myndir"...

Kveðja GummOn
Guđmundur Jónsson

Eigandi GummOn´s

  • Nafn: Guđmundur Jónsson
  • Kennitala: 090885-3169
  • Netfang: gummij85@hotmail
  • Stađur: Reykjavík/Árbćr
  • Atvinna: VV-Sölumađur
  • Hjúskaparstađa: Á lausu
  • Annađ: Sólon-Barţjónn

Framundan


3.Okt - Vinna/Sólon
4.Okt - Vinna/Sólon
9.Okt - Sjúkraţjálfun
10.Okt - Vinna/Sólon
11.Okt - Vinna/Sólon
7.Nóv - Sumarbústađur

Lag Vikunnar


Artist-Foo Figthers
Name-Stranger things have happened
Genre-Classic Rock

Afmćli mitt

Ţjóđhátíđ

Nýjast á HumorPix

Funny Images, Prince Kid Funny Images, Nicolas Cage in every single movie Funny Images, The grasping shirt Funny Images, Give Baldy Your Tit Funny Images, Why I’m watching the summer olympics Funny Images, How to answer every True or False quiz

Leikur dagsins

Innskráningar kubbur

Leit