::.Ljóshćrđ gella ?
Rikki: Er hann ekki með einhverri gellu ?
Ég: Júbb... en hún er ekkert spes.
Rikki: Bíddu er hún ekki ljóshærð ?
Ég: Jú reyndar ...hún er svona fjarskafríð, en þegar þú ert kominn of nálægt fer hún að líkjast apa í framan.
Rikki: hahahaha...
Ég: (með alvarlegum tón)....æji maður á ekki að segja svona, en hún samt alveg ógeðslega ljót.
Rikki dó næstum því úr hlátri og ég líka ...ég var ekkert að kveikja á því hvað ég var að segja þarna á tímbili. Missti þetta gjörsamlega útur mér því ég er nú ekki vanur að drulla yfir fólk sem ég þekki ekkert :)
En Sunneva sem er að vinna með mér á Sólon var svo hrikalega elskuleg að redda mér fríi á laugardaginn. Ég og Rafn ætlum að skralla eitthvað þá en ég ætla að draga hann með mér í afmæli um kvöldið, spurning hvort það verði Suit Up kvöld þema :) ..en af því að ég fékk frí þá verð ég að mæta nokkuð snemma í kvöld og vinna frá 20:00 til 5:30.
En áður en ég kveð hérna þá finnst mér fólk megi alveg skilja eftir sig slóð og commenta eitthvað sniðugt. T.d. hvað fólk ætlar að gera um helgina og svona. Alltaf gaman að fá comment þó það sé ekki nema bara "Hæ", þá veit ég að ÞÚ lesandi góður lest síðuna mína :D
Kveðja GummOn














