" />

::.What ??!!

28. september 2007 klukkan 11:33


Ég held í alvöru að þetta sé Eyþór Ingi Gunnlaugsson :D ...gaurinn sem vann söngvakeppni framhaldsskóla 2007. Allavega alveg jafn flippaður gaur ..!!

Kveðja GummOn
Guđmundur Jónsson

::.Drepleiđinlegt fiskabúr?

19. september 2007 klukkan 23:03
Hæjjíí :P

Loksins þegar ég var hættur að hugsa um þessa blessuðu bústaðarferð þá las ég yfir commentin sem voru þar á ferð. Þetta situr ennþá í sumum greinilega og líka einhverjum sem komu ekki einu sinni í bústaðnum eru farnir að vera með :D ...þess vegna ákvað ég bara að blogga og koma með einhvað annað umræðuefni.

Allt gott að frétta af mér eins og vanalega. Það er ekki langt síðan að ég fékk mér fiskabúr í herbergið mitt því ég er svo hrifinn af gúbbífiskum. Það hefur ekki gengið neitt sérlega vel, því núna er bara einn fiskur eftir af 12 fiskum sem ég hef keypt og greinilega alveg DREPleiðinlegt í þessu fiskabúri. Elínu Eir litlu frænku minni tókst að drepa fjóra fiska með því að hella öllum fiskamatnum ofaní fiskabúrið. Veit ekki hvað ég ætla að gera í framhaldinu..en eitt að víst að þessi eini sem er í fiskabúrinu hefur það örugglega ekkert það gott þar sem hann er að verða einhverfur.

En í dag fór ég Krisjuvík rétt hjá Bláfjöllum í einhverja töku fyrir Sprite auglýsingu. Ég og ásamt þremur íslendingakrökkum vorum eiginlega bara aukahlutverk og svo var einn hjólabretta gaur frá Ítalíu svona aðalhlutverk. Ég gerði eiginlega samning uppá að ég mætti ekki segja frá þessari auglýsingu þannig að þið verðið bara bíða og sjá þegar þetta kemur. Getið farið á Youtube.com og flett bara upp "sprite zero" og þá kemur eitthvað skemmtilegt upp því þau eru búinn að gera allskonar auglýsingar.

En næstu helgi ætla ég væntanlega bara skella mér til Akureyrar með Steina, Jóni og Ella. Það er nú kannski ekkert mikið að gerast á Akureyri...en það jafnast samt ekkert á við að djamma þar, því öll skiptin sem við höfum farið hefur aldrei verið leiðinlegt!! En segjum þetta gott í bili..

Kveðja GummOn
Guđmundur Jónsson

::.Sumarbústađarhelgi

17. september 2007 klukkan 00:44
Jæja þá er maður nú kominn heim eftir nokkuð skemmtilega sumarbústað. Ég nenni nú ekki að vera skrifa frá öllu því sem skeði þessa helgi. Þetta var alveg vel heppnuð ferð í alla staði og skemmtum við okkur líka svakalega en ég get nú samt ekki sagt að þetta hafi verið besta ferð sem ég hef farið í. Auðvitað var farið í Buffalo drykkjuleikinn sem klikkar ekki, það var farið í Buzz oftar en einu sinni, kíkt í pottinn, borðað kjötfass og ef eitthvað sé nefnt.

En það er samt eitt sem situr svolítið í mér eftir þessa skemmtilegu ferð, og það er að ég skil ekki afhverju strákarnir fóru bara klukkan 8:00 um morguninn á sunnudeginum. Ég hef nú farið margar sumarbústaðarferðir og ALDREI hefur verið farið svona snemma á sunnudeginum. Mér fannst þetta frekar skítt af strákunum að skilja mig, Gaua bró, Gumma Troy og Ómar bara eftir. Það er ekki nóg að þrífa nokkur glös og setja einhverjar dósir í poka eins og þeir gerðu áður en þeir fóru...heldur þarf að þrífa miklu miklu meira, og þar fyrir utan var uppþvottavél í þessum bústað og sá ég ekki alveg tilganginn í að þrífa alla þessa diska og glös. Og líka er ég alveg viss um að ef einhver annar væri með þennan bústað á sínu nafni myndi ekki vera hress með að allir færu bara ...líka þar sem bústaðurinn var ekkert í góða standi.

Allavega þegar við vöknuðum klukkan 14:00 voru bara allir strákarnir farnir og þá hófust þrif á bústaðnum sem var b.t.w. á hvolfi og reyndum við að gera okkar besta á að láta hann líta út eins og við tókum við honum, en ég á nú samt alveg von á því að fá einhvern reikning frá VR í næstu viku og verðum við eitthvað að leysa í því allir saman.

Eftir að við vorum búnir að þrífa fórum við á Selfoss og fengum okkur bara að borða í rólegheitunum og dóluðum bara svo í bæinn og vorum komnir heim um 17:00. En ég vil bara þakka ykkur kærlega vel fyrir þessa bústaðaferð því þetta var alveg ýkt gaman og vonandi verður þetta endurtekið í bráð...en þá getur vonandi einhver annar tekið að sér að panta bústað á sínu nafni. Svo vil ég bara þakka Ómari, Gumma Troy og Gaua bró alveg sérstaklega fyrir að hjálpa mér með þrifinn og skilja mig ekki eftir einan.

Ætla ekkert að vera hafa þetta lengra í bili...og vonandi fara nú einhverjar myndir að detta hér inn frá Eyjum og þessum bústað ;)

Kveðja GummOn
Guđmundur Jónsson

::.Skeggi Skeggisson

13. september 2007 klukkan 00:32
Hæhó og dillumdó!!

Jæja...hef ákveðið að blogga pínu. Eins og margoft á síðustu færslum erum við að fara í bústað næstu helgi og er eiginlega komið á hreint hverjir ætla láta sjá sig :

Gummi (ég)
Halli
Helgi
Andri
Jón
Ómar
Gaui.is
Gummi Troy
Jökli
Grétar
Gaui bró
Ægir (kannski)


Leiðinlegasta við þetta er að bæði Steini og Jói komast ekki og get ég varla sagt að þeir hafi beilað. Steini hefur að vísu góða afsökun þar sem hann er útá sjó og lítið hefur verið um fiskerí fyrstu daganna þannig þeir ætla að vera eitthvað lengur...vonandi kemst hann annan daginn. Jói kallinn er að fara á einhverjar æfingar á Akureyri og skil ég hann svosem að geta ekki komist.

En það er hittingur heima hjá Jökla á morgun á slaginu 21:30 og ætlum við að fara yfir málin. Þá er ég að meina hverjir fara á bíl, hvernig verður matnum háttað, hvað skal taka með okkur o.s.frv. Endilega mætið allir og er frjálst að koma með bjór :) ...ég ætla allavega koma með eitthvað!!

En þar sem Steini ætlar ekki að koma í bústaðinn er ég búinn að raka af mér skeggið. Ég var kominn með svo hrikalega mikið að hálfa væri nóg!! Mér var farið að klægja, vera illt og auk þess var þetta ógeðslegt þar sem ég er hálfpartinn með rautt skegg...eða svo segja strákarnir (en í alvöru er ég með kastaníubrúnt skegg) :D Og svo nennti ég heldur ekkert að vera einn í þessu því annars væri það ekkert gaman...eða kannski fyrir hina.




Sjáiði þessa mynd hvað ég er með mikið skegg (tekinn í gær)...ég lít út fyrir að vera eins og útigangsmaður!! En ég ætla ekki að hafa þetta mikið lengra...vona bara að sjá ykkur á morgun sem flesta :D

Kveðja GummOn
Guđmundur Jónsson

::.Tippiđ hér

11. september 2007 klukkan 00:57
 Vóó..ég varð bara að blogga eftir að hafa séð hversu margir heimsóttu síðuna mína í gær (mánudag). Í gær var farið í bíó ásamt því að Rafn, Ægir og Siggi skelltu sér með mér. Við fórum á myndina Knocked Up í Laugarásbíó. Ég verð bara að segja að þessi mynd kom mér gjörsamlega á óvart því ég var nú ekki að búast við miklu af henni. Langt síðan að ég hef farið í bíó og salurinn veltist um af hlátri alla myndina. Þetta minnti mig bara á Dumb&Dumber hérna í denn...en samt kannski eins góð. En ég mæli alveg hiklaust með henni.

Núna næstu helgi erum við strákarnir að fara í sumarbústað rétt hjá Grímsnesi og er manni farið að hlakka allsvakalega mikið til að fara þangað og get ég ekki beðið eftir því að fá að raka mig því ég og Steini erum í  þrjóskukeppni og ætlum við að láta þetta gott heita í bústaðnum og raka okkur kjaftinn.

Það er búið að bjóða mér nýja vinnu þar sem BuRn partýið er að öllum líkindum búið í bili. Kallinn sem hefur séð um þetta vill halda þessu samt áfram í vetur og vill aðeins hafa mig. Þá er þetta eitthvað í gegnum vísindarferðunum í Háskólanum. Ég verð samt mjög líklega að vinna á föstudeginum og verð ég ekkert búinn fyrr en klukkan 20:00 og þá verð ég bara að bruna austur í bústaðinn. Mér lýst allavega mjög vel á þetta og alltaf ágætt að hafa svona auka vinnu um helgar.

Eins og má sjá á myndinni hér til hliðar þá skemmti hann Ægir sér konunglega í bíó í gær :D ...ekki veit ég samt hver stelpan er ? ..sýnist samt bara að þetta sé hún Dorrit Musajev.




Vildi enda þetta blogg á þessari frábæru mynd af mér í Eyjum 2007. Mér þótti þessi auglýsing ekkert sérlega smekkleg...en ég hlýddi þó :D

Kveðja GummOn
Guđmundur Jónsson

::.Helgi

10. september 2007 klukkan 00:57


Þetta er hann Helgi og kærastan hans Elín. Þar sem hann Helgi er orðinn svo svakalega slappur í djamminu þessa daganna. Þetta er ástæðan :D

Kv GummOn
Guđmundur Jónsson

::.Axwell

27. ágúst 2007 klukkan 03:28
Þá er þessi vika senn á enda og næsta vika verður líklega mjög notaleg hjá mér þar sem ég er í sumarfríi og ætla því bara að hafa það gott hérna heima. Hver veit nema maður skellir sér í sveitina til hennar ömmu gömlu.

Helgin var ágæt. Á föstudeginum var ekki gert neitt nema að ég fór í golf og svo æfingu um kvöldið. Svo fór ég bara í ljós og svo heim til mömmu pabba og horfði á Tv-ið. Ég var að vonast til að einhver myndi nú hringja í mig og draga mig á eitthvað skrall...en raunin varð önnur og enginn hringdi í mig þannig ég fór bara í háttinn.

Á laugardeginum var skellt sér í Valsheimilið þar sem var verið að vígja nýja húsið. Svo fór ég til Gumma Troy og sótti mér bjór sem hann hafði verslað fyrir mig. Ég kom við hérna heima og skellti mér í Burn fötin og fékk mér bjór. Elín systir kom og skutlaði mér til Guðna liðstjóra í Val og þar voru allir strákarnir í handboltanum að drekka :D ...ég var þar til klukkan 22:00 og þá kom hún Kristbjörg elskan mín og sótti mig. Við fórum í eitthvað leiðinlegasta partý ever...það var enginn stemmari þar og stoppuðum við stutt þar sem fólkið var lélegt í drykkju. John skutlaði mér heim þar sem ég gat farið í fataskipti og hann skutlaði mér svo bara í Valsheimilið. Ég hélt drykkju minnu áfram þar og var ég bara orðinn nokkuð góður klukkan 2:00 og ákvað ég að labba þar niðrí bæ....aleinn!! Í leiðinni ætlaði ég að athuga hvort Rafn og félagar væru ennþá þar sem hann Rafn hélt afmælið sitt...en þar var enginn þannig ég hélt áfram göngu minni niðrí bæ.

Ég get nú ekki neitað því en það var hundleiðinlegt í bænum...ég átti enga inneign, var með enga peninga á mér eða neitt!!! Elvar bauð mér uppá nokkra drykki þangað til að ég fór í BlackOut...man ekkert meir. Man að Gaui kom til mín og skutlaði mér heim loksins...takk fyrir farið elsku Gaui minn :*

Ég veit eiginlega ekki hvað skeði hérna heima þegar ég vaknaði klukkan 21:00 hérna heima. Svo virðist að ég hafi hellt allsvakalega niður. Ég hafði þá fengið mér bjór í ísskápnum og farið hérna með hann niður og farið í tölvunna...ég veit eiginlega ekki hvernig ég fór að þessu því allur tölvuskjárinn er útí bjór...allt borðið, lyklaborðið er ónýtt, síminn minn í einhverju laski...og gólfið allt klístrað!! ?? En ég komst allavega úr öðrum skónum áður en ég fór uppí :D

Ég fór með Andra í bíó áðan á myndina "The Bourne Ultimatum". Hún var nú bara ágæt og var ég ekki að búast við miklu af henni þar sem mynd nr.2 er ömurleg. Ég og Andri enduðum eiginlega ekkert einir í bíó því Ægir, Ómar, Björgvin og Gummi voru á sömu mynd og sátum við allir saman. Ég þakka fyrir bíóið strákar.

Minn uppáhalds DJ er Axwell og verð ég ALDREI fyrir vonbrigðum þegar ég heyri ný lög frá honum...ég veit ekki afhverju en það klikkar eiginlega aldrei. Ég er búinn að hlusta á þetta nýja lag hans svona 100 sinnum og verð ég aldrei leiður á því. Ég verð einhverntíman að sjá þennan snilling spila og væri ekki amalegt að fá hann hingað til lands. Ef þér langar í einhver lög frá honum þá get ég sent þér lög frá honum í gegnum Msn :)



Axwell - I Found you (The House Keepers Club Mix)

Kveðja GummOn

Guđmundur Jónsson

::.Landsliđ okkar Íslendinga

23. ágúst 2007 klukkan 01:10
Hæhó...!! (loksins byrjaður aftur að blogga)

Ég var að lesa Fréttablaðið í hádeginu í dag í rólegheitum og yfirleitt fletti ég nú bara blaðinu beint að íþróttum og les allar íþróttafréttir. Og í dag kom ein heimskulegasta frétt allra tíma um okkar landslið Íslendinga.

Góður tími fyrir íslenska landsliðið
A-landslið karla hefur verið ósigrandi í miðjum ágúst undanfarin tólf ár. Ísland hefur unnið átta af síðustu tíu landsleikjum sínum á þessum tíma og skorað 2,3 mörk að meðaltali í leik.



Okey í það fyrsta þá vissi ekki hvort ég ætti að vera stoltur af þessari frábæru frammistöðu okkar Íslendinga eða hvort ég ætti að vera grenja. Þetta eru ein heimskulegustu tölfræði sem ég hef heyrt um...er það kannski þess vegna að við erum í 117.sæti á FIFA listanum ?? ...kannski ættum við bara að hætta spila fótbolta og spila bara okkar leiki yfir miðjan ágúst, þá kannski loksins förum við að rífa okkur upp þennan blessaða FIFA lista.

Við getum líka komið með eitthvað dæmi og bara sagt að Ísland sé algjörlega ósigrandi frá upphafi ALLANN ágúst mánuð áttunda hvert ár....alveg jafn heimskulegt!! En hvað samt í alvörunni er verið að segja frá svona ömurlegri tölfræði...afhverju bara ekki að sleppa því og sætta okkur við það að við getum ekkert í fótbolta.

Þessi lið eru á meðal sem eru fyrir ofan okkur í FIFA listanum (ég verð bara að viðurkenna að sumt af þessum nöfnum hélt ég að væri eitthvað ofaná brauð) : Guyana, Cuba, Bahrain, Ethiopia, Slovenia, Jamaica, United Arab Emirates, Botswana, Uganda, Jordan, CongoZimbabwe, Tanzania, St.Vincent and the Grenadines, Equatroil Guinea, Sudan, Kazakhstan, Namibia, Burundi, Syria, Malawi, Thailand, Gabon, Azerbajian, Guinea.

En nóg um þetta íslenska landslið :D ..Það er allt gott að frétta af mér...búinn að hafa nóg að gera í sumar og er þetta með því betra sumar sem ég hef upplifað, þó að manni hefði viljað enda sumarið með stæl og fara til útlanda en það verður víst ekkert fyrr en næsta sumar :D ..Bene baby!!

 Helgin 14. - 16. september verið haldið til Grímsnes þar sem við strákarnir erum að fara í sumarbústað. Þetta verður heljarinnar pulsupartý og bara fallegir menn þar á ferð. Þeir sem koma eru eftirfarandi :

Ég
Jökli

Gummi Troy
Halli
Steini
Jón
Ómar
Gaui bróðir
Jói
Andri
Helgi
Gaui.is
Grétar

Þeir sem eru merktir með rauðu eru búnir að borga ...en hinir sauðirnir sem eiga eftir að borga þurfa að borga mér sem allra allra fyrst!!

331 - 26 - 3169
090885 - 3169
1.000 krónur


En ég hef rosalega góða tilfinningu fyrir þessari bústaðarferð, þó að það vanti pínu Palla :) ..Svo er Grétar tæpur ég vona svo sannarlega að hann sjái sig fært um að mæta því það jafnast ekkert á við að hafa einn Grétar í svona ferð. En ég ætla ekki að hafa þetta lengra í bili þangað til næst...Annars heimta ég comment frá öllum :D ...óska mér til hamingju með bloggið (loksins) !! :D

Kveðja GummOn
Guđmundur Jónsson

::.Helgin

30. júlí 2007 klukkan 01:58
Jæja þá er nú þessi blessaða helgi búinn. Ég get ekki sagt annað en að þessi helgi hafi verið svolítið skrítinn, ekkert endilega á slæman hátt. En á föstudaginn þá fór ég í golfmót Vatnsvirkjans og lenti í 3.sæti. Mér gekk alveg ágætlega í þessu móti og var bjór í boði. Auðvitað drakk ég hann og var ég orðinn nokkuð góður á því á síðustu braut. Svo þegar verðlaunaafhendingin var í gangi var líka frír bjór og ég drakk auðvitað meira og var bara orðinn ....tjahh...fullur :D Ég er ótrúlega sáttur með mig þetta kvöld, en ég fór heim og fékk mér einn bjór og svo í háttinn. Gerist ekki á hverjum degi þar sem ég er fullur og fer bara að sofa.

En það var nú líka ástæða fyrir því að ég fór svona snemma í háttinn. Ég vaknaði klukkan 7:00 um morguninn og ég og Gaui bróðir fórum í golfmót uppí Mosó, áttum rástíma klukkan 8:00. Mér gekk ágætlega í þessu móti en hefði samt mátt spila betur. Eftir mótið brunaði ég í nauthólsvíkina og keppti með strákunum í strandhandboltamótinu. Við vorum með helvíti strekt lið og komumst í 8-liða úrslit en töpuðum fyrir FH. Það var frekar svekkjandi þar sem við áttum alveg erindi í þessa keppni.

Ég og Steini fórum svo á stælinn og fengum okkur að borða svo lá leiðinn bara heim. Ég steinrotaðist uppí rúmmi og fór og dressaði mig upp fyrir Burn Partý. Svo hringdi ég í stelpurnar og þær ætluðu að sækja mig klukkan 23:00. Ég fór bara og passaði liltu frænku mína hana Elínu Eir og við horfðum á Móglí teiknimyndina. Svo hringdi Kristbjörg í mig og sagði mér að það væri ekkert Burn Partý. Ég varð pínu svekktur því ég var búinn að hafa mig til í þetta og svo bara ekkert partý. Ég hefði getað farið á lokahófið hjá handboltanum og fengið frítt að drekka, jafnvel farið og gert eitthvað ennþá skemmtilegra en að hanga bara heima til að verða 23:00.

Palli kom og sótti mig og við fórum til Guðmanns. Þar voru Halli og náttúrulega Guðmann og við vorum bara að horfa á einhver tónlistarmyndbönd í rólegheitum. Ég var eini sem var að drekka og Halli skutlaði mér bara í bæinn. Í bænum var bara leiðinlegt...ég held ég fari aldrei aftur í Hvítri skyrtu aftur í bæinn því hún kom heim ÓGEÐslega skítug....varla hvítur blettur á henni!!! Andri kom á djammið og var ég mest allann tímann með honum.



Hér er einum of steikt mynd af mér....alveg VEL í því :D ...


En nú er það eyjar á fimmtudaginn og er þetta allt að bresta á :D ...ég er að deyja úr spenningi því þetta verður bara fjör. Ég, Palli og Gaui bróðir ætlum núna í vikunni að fara versla okkur tjald og gera svona allt reddí fyrir ferðina. Svo hugsanlega á morgun ætla ég að hitta hana Lilju mína. Maður verður nú að hitta eitthvað á hana víst hún er í bænum. Við ætlum væntanlega að skella okkur í keilu og gera eitthvað kósý saman...hlakka til að hitta þessa elsku.

En ég ætla ekki að hafa þetta lengra í bili. En ég fór á Simpsons myndina í kvöld og mæli ég HIKLAUST með henni enda líka svakalega góð mynd þar á ferð ;)

Kveðja GummOn
Guđmundur Jónsson

::.Afmćliđ mitt

24. júlí 2007 klukkan 00:38


Jább...ég er að fara halda afmælið mitt þann 11.ágúst og vonandi fæ ég að sjá ykkur sem flest í afmælinu mínu. Endilega látið mig vita ef þið sjáið ykkur ekki fært að mæta.

En það er einum of stutt á þjóðhátíð...ekki nema 9 dagar :D ...ég get varla beðið eftir því. Ég man þegar ég setti niðurtalninguna hérna inná síðuna mína og þá voru 122 dagar á þjóðhátíð. Ég, Palli, Gaui bróðir, Jökull og Halli erum að fara á fimmtudeginum 2.ágúst og er 50% líkur á því að Grétar komi líka, en hann er ekki alveg viss um að koma ....sem er b.t.w. ömurlegt, því það jafnast ekkert á við að hafa hann með sér á djamminu.

En ætla ekki að hafa þetta lengra :) ...endilega commenta um hverjir ætla að koma í afmælið mitt :D

Kveðja GummOn
Guđmundur Jónsson

Eigandi GummOn´s

  • Nafn: Guđmundur Jónsson
  • Kennitala: 090885-3169
  • Netfang: gummij85@hotmail
  • Stađur: Reykjavík/Árbćr
  • Atvinna: VV-Sölumađur
  • Hjúskaparstađa: Á lausu
  • Annađ: Sólon-Barţjónn

Framundan


3.Okt - Vinna/Sólon
4.Okt - Vinna/Sólon
9.Okt - Sjúkraţjálfun
10.Okt - Vinna/Sólon
11.Okt - Vinna/Sólon
7.Nóv - Sumarbústađur

Lag Vikunnar


Artist-Foo Figthers
Name-Stranger things have happened
Genre-Classic Rock

Afmćli mitt

Ţjóđhátíđ

Nýjast á HumorPix

Funny Images, Prince Kid Funny Images, Nicolas Cage in every single movie Funny Images, The grasping shirt Funny Images, Give Baldy Your Tit Funny Images, Why I’m watching the summer olympics Funny Images, How to answer every True or False quiz

Leikur dagsins

Innskráningar kubbur

Leit