" />

::.Kóngakvöld

24. nóvember 2008 klukkan 23:31

Já komuð marg blessuð og sæl
og ekkert helvíts væl
þó mánudagur er dagur sem allir hata
í fyrra lífi hét ég Kata

Nú er ný helvítis vika að byrja
þarf alltaf að vakna snemma og smyrja
vinna alltaf ógeðslega ömurlega lengi
þó það sé ekki í fatahengi

Ég veit ekki afhverju ég er semja
eitthvað sem mætti fara hemja
Ef þið viljið heyra meira
ríðið þá bara stelpu í eyra.

Já smá flipp í gangi. Ég mætti prufa taka samt Gaua.is til fyrirmyndar því hann er frekar góður í þessu, þetta var meira svona djókur. En nóg um það, ég er ekkert bitur...frekar ferskur bara eða sítrónu ferskur eins og Hjalti vill orða það stundum ;) Síðasta helgi var frekar góð en á föstudeginum var ég bara að vinna á Sólon með honum Skúla á efri bar. Frekar dautt kvöld og var lokað klukkan 4:00 og ég var kominn heim klukkan 5:00 og fór beint í háttinn.

Á laugardeginum var vaknað seint en ég ætlaði með Ágústu og Lilju á skauta þar sem ég hef ekki farið á skauta síðan í 8.bekk eða eitthvað og langaði virkilega að fara. En jújú...ég svaf yfir mig á meðan Lilja reyndi að ná í mig þá var ekki fræðilegur að vekja mig. þegar klukkan fór að nálgast 17:00 fór ég og gerði mig ready fyrir Kóngakvöldið okkar Rafns og Hjalta. Við vorum allir í svörtu Suit-i (svört jakkaföt, svört skyrtao og svört slaufa). Ég fór heim til Rabba og fékk fordrykk þar í boði foreldra hans eða White Russian...fáranlega gott. Meðan við drukkum og biðum eftir honum Hjalta var horft á bragðdaufan Man Utd leik. Svo kom Hjalti og þá var pantaður leigubíll.

Við héldum þá áleiðis á Hilton hótelið þar sem við áttum pantað borð á veitingastaðnum Vox. Ég var svo innilega til í að smakka eitthvað nýtt og fékk mér villta gæs að broða sem smakkaðist virkilega vel. Og svo fékk ég mér eftirrétt sem var einnig mjög góður. Eftir matinn færðum við okkur á barinn og sátumst niður þar og drukkum úr glösunum okkar og fórum svo bara í bæinn, og þar lá leiðinn á Hverfisbarinn þar sem Gott í kroppinn partýið var.

Þar hitti maður alveg fullt fullt af fólki. Ég var orðinn alveg helvíti góður á því þarna um 23:00 leitið og fór í dyrnar og var að taka móti fólki og knúsa alla sem komu inn (ekki spyrja afhverju). Svo sat ég með Karlottu, Sæunni, Helgu og Erlu Bjé á borði ásamt Gaua bróðir og kærustunni hans hana Auði. Karlotta sagði svo við Auði að hún líktist ekkert smá leikkonunni Reese Witherspoon, ég var ekki á sama máli og greip svona hálfpartinn inní og sagði: Mér finnst þú meira svona líkjast leikarnum Antony Hopkins.....það misstu allir sig úr hlátri nema henni Karlottu og var hún ekki sátt. Ég var orðinn frekar skrautlegur þarna um tíma og þegar klukkan var orðinn 00:00 kom Hummer Limmóinn.

Í Hummernum var stemmari. Ég, Rafn, Gaui bró, Auður, Hjalti, Jón Ragnar ásamt einhverjum stelpum komu inní bílinn og það var skálað kampavíni og drukkið bjór. Ég fór svo á eitthvað trúnó með einhverri stelpu sem ég þekkti gjörsamlega ekki neitt og ég man ekki alveg hvernig þetta var en ég sagði við hana eitthvað "Pabbi þinn er þetta"...hún horfði bara á mig í smá stund eins og hún vildi myrða mig. Vitir menn þá var pabbi hennar nýdáinn og ég var alveg miður mín og við töluðum alveg heillengi um hann.

Eftir þennan hálftíma rúnt var stoppað á 101 eða nýja staðnum one-o-one. Við fórum þangað inn og beint á dansgólfið þar sem kallinn var kominn í stuð. Ég fór og ætlaði að kaupa mér drykk og þegar drykkurinn var kominn á borðið var ég rukkaður um 1.300 krónur. Ég sagði að ég vildi bara einfaldan....heyðru þá er einfaldur bara á 1.300 krónur !!!!!! Ég horfði smástund á gaurinn og spurði hvort að hann vildi ekki fötin mín líka...það vakti ekki mikla kátínu hjá gaurnum :D hahah....mér þótti þetta fyndið.

Svo kíkti ég á Apótekið....b.t.w. með einhverjum Pólverjum, ég hélt svo innilega að ég væri með Hjalta og Rabba en nei þá hittum við einhverja Pólverja og ég var sko fljótur að stinga þá af. Ég var reyndar ekkert lengi einn því ég hitti einn vin minn á Apótekinu og átti gott spjall við hann. Svo fór ég bara á Sólon og hitti þar alla strákana. Ég var orðinn frekar fullur þar á tímabili og var þar bara alveg til lokunnar.



Virkilega sáttur með þetta kvöld =) ...vil þakka Rafni og Hjalta klárlega fyrir þetta kvöld. Við erum meira segja búnir að ákveða hitting næstu helgi heima hjá mér þar sem ég verð einn heima og ætlum við að taka Little Britain USA maraþon á þetta og drekka bjór. Hver veit nema maður skelli upptökum frá síðasta bústaðarferð í tækið sem enginn er búinn að sjá =)

Kveðja GummOn

Guðmundur Jónsson

::.Gott í kroppinn partý

18. nóvember 2008 klukkan 00:10



Já þá er komið að því árlega partý-i sem við strákarnir í boltanum höldum og hefur nú öll skiptin heppnast gríðalega vel og hefur fólk tekið sérlega vel í þetta partý okkar og ætlum við að reyna fylla Hverfisbarinn. Ef þú og ásamt vinum hafið áhuga á því að koma í frábæra skemmtun næstkomandi laugardag vertu þá endilega í sambandi við mig í síma 694-5885 og ég verð með miða handa þér á aðeins 1.000 kr. Það verður keyptur alveg hellingur af bjór þannig þú þarft ekki að örvænta um að fá ekki nóg.

Kveðja GummOn

Guðmundur Jónsson

::.Akureyrarferð = Snilld

17. nóvember 2008 klukkan 02:05

Þá er maður kominn heim hálf timbraður eftir æðislega Akureyrarferð. Ég vil sérstaklega þakka Ívar og hans heittelskuðu að hafa nennt að vera með okkur alla þessa helgi, en við fengum gistingu hjá þeim. Vil einnig Jóni Ragnari fyrir að hafa nennt að keyra alla þessa leið með okkur í bíl, þar sem ég og Steini erum nú svo grillaðir. Jón hefði samt mátt vera meira með okkur þessa helgi. Svo vil ég auðvitað þakka honum Steina kærlega fyrir virkilega góða helgi, hún var bara frábær í alla staði.




Þetta lag er klárlega lag helgarinnar!! Við hlustuðum örugglega á þetta lag svona 100 sinnum enda mjög flott lag á ferð, reyndar pínu steikt lag en það er eitthvað við það sem ég fýla virkilega og mjög auðvelt að fá það á heilann.

Við lögðum af stað til Akureyrar á fimmtudegi klukkan svona 19:30 og var bíllinn nokkuð þétt setinn þar sem tvær dömur fengu að fljóta með okkur. Við vorum komnir rétt fyrir miðnætti og Ívar tók vel á móti okkur ásamt Theu. Við gerðum fataskipti og opnuðum okkur bjór og fórum á Kaffi Amor. Við hittum þar fullt af fólki og næstu öllu handboltaliði Akureyrar sem voru að fagna sigri á móti FH. Þegar Kaffi Amor lokaði var allt reynt til þess að fara í eftirpartý. Við enduðum fyrst í örugglega sveittasta partý-i sem ég hef lent í og við stoppuðum þar ekkert sérlega lengi þar sem okkur fannst við vera eittvað svo óboðnir þar og rukum út þar sem ein vinkona Steina vissi um eitthvað eftirpartý. Við stóðum örugglega úti í svona klukkutíma og við vorum ekkert að finna þetta eftirpartý og mér, Ívari og Steina var orðið alveg SKÍTkalt þannig við stungum bara af heim og fórum bara í háttinn.

Á föstudeginum var vaknað og farið í fótbolta. Ég ætlaði nú í fyrstu ekkert að vera með þar sem löppin mín er nú ekki alveg 100%, en ég fór með því ef það skildi vanta einn þá myndi ég bara standa í marki. Vitir menn...auðvitað vantaði einn og ég stóð milli stanganna og stóð mig bara sveimér þá ansi vel. Eftir boltann var farið uppí íbúð og sturtað sig. Við fórum svo bara á Subway og fengum okkur að éta. Ég og Ívar vorum að vísu byrjaðir að drekka og vorum að komast í gírinn klukkan 15:00. Eftir Subway var farið í íbúð og spilað Fifa 2009 sem er alveg sjúklega góður leikur. við spiluðum nokkra leiki og hlustuðum á tónlist og drukkum bjór...gerist ekki betra. Þegar klukkan var orðin 21:00 fórum við á Kaffi Akureyri í eitthvað Háskóla kvöld þar sem var frítt að drekka til 00:00. Vá ..ég veit eiginlega ekki hvað ég drakk marga bjóra en ég hef heyrt af því að ég var ansi skrautlegur á tímabili og var ekki með rænu. Þetta var mjög gott kvöld og mikið dansað og sungið. Þegar klukkan var orðin 4:00 byrjaði ég bara að labbba af stað og ætlaði greinilega bara að labba til Ívars því ég var löngu búinn að  týna Ívari og Steina. Á miðri leið stoppaði einhver kona bauðst til þess að keyra mig heim. Ég settist auðvitað uppí bílinn og þakkaði svo pent fyrir mig þegar hún var búinn að skutla mér.

Daginn eftir var ég alveg Sjúúúklega þunnur. Ég lá bara uppí rúmminu allann daginn og hélt ég myndi ekki getað drukkið þetta kvöld. Ég, Ívar og Steini láum bara eins og skötur uppí rúmmi að horfa á Youtube myndbönd og hlægja af þeim og spiluðum einnig Fifa. Þegar klukkan var orðin 20:00 höfðum við okkur til og héldum svo til Ingu í smá fyrirpartý áður en var haldið á Sjallann. Margrét og Inga voru ansi hressar og var spjallað um hitt og þetta og mikið talað um heita gaura...ég var ekki alveg viss afhverju við vorum að tala um heita gaura en það hljómaði allavega mjög öfugt :D ...Klukkan var orðin 00:30 þá fórum við á Sjallann og alveg stappað af fólki. Við strákarnir vorum nú með þeim elstu á þessu balli en það var bara allt í góðu. Það var eitt sem böggaði mig rosalega á þessu balli var hvað mikið af slagsmálum voru til staðar, kom mér virkilega á óvart. Ég hitti hann Ingvar kallinn en hann var að vinna á barnum og fengum við okkur nokkur skot saman og vil ég þakka honum fyrir það. Svo var ég bara orðinn helvíti fullur fyrir rest og fór bara í BlackOut...man bara að ég var alltíeinu kominn til Ingu og Margrét og Inga voru bara fara í háttinn meðan ég var alveg eiturhress. Thea var svo elskuleg og sótti mig en stelpurnar voru að vísu búnar bjóða mér gistingu en ég vildi bara komast heim til Ívars.

En eins og ég er búinn að segja Steina svo oft að það klikkar aldrei þegar við förum svona ferðir útá land, hvort það sé Bolungarvík eða Akureyri...það skiptir ekki máli, það er bara alltaf gaman þegar við tökum upp á einhverju svona og Rafn getur verið sammála því. En ég ætla ekki að hafa þetta lengra í bili, er að fara í myndatöku í vikunni hjá honum Ásgeiri og get ég ekki beðið eftir því :D

Kveðja GummOn

Guðmundur Jónsson

::.Spólusektaræði og bústaður

06. nóvember 2008 klukkan 00:14

Hey fólks =D

Það vita nú flest allir hversu óheppinn ég er með síma og hvað mér tekst alltaf að meiða mig á einhvern fáranlegan hátt. Nú er það nýtt og það eru spólusektir....ég er alveg ótrúlegur í spólum. Ég er nú þekktur fyrir að glápa á eitthvað skemmtilegt á Dvd inní herberginu með fullt af snakki og gosi. En daginn eftir gleymi ég ALLTAF að skila spólunni...hvað er það ?? ...ég var t.d. að skila spólu í síðustu viku þar sem ég gleymdi að skila henni í einhverja daga og þurfti að borga 2.800 kr og svo í dag var ég að skila spólu og veit ég ekkert hvernig mér tókst að skila henni svona seint, en ég þurfti að borga 4.200 kall!! Jésús pétur...ég held næst að ég kaupi mér bara myndina sem mig langar að sjá því það er örugglega ódýrara. Þetta voru líka einungis dæmi því ég er alltaf að gleyma að skila þessu drasli.

En nóg um spólusektir. Nú er helgi framundan og ætla ég að skella mér í sumarbústað. Það verður örugglega algjör snilld þar sem ég, Rikki, Helgi og Andri höfum ekki farið allir saman í bústað síðan nítjánhundruð og rauðkál. Ætli að það verði ekki um einhvað um:

  • Ælur með fullt af baunum
  • Einhver velti sér uppúr sandkassanum og fari svo í pottinn þannig hann verður allur svartur
  • Spurning hvort við þurfum að sjóða vatn til þess að hita pottinn
  • Kannski fær Andri tott hjá einhverri í sturtunni
  • Tjahh...kannski er Rikki með smá Surprise handa Andra og Tinna Dan komi bara
  • Ætli Rikki deyji ekki fyrstur áður en að ég er kominn í bústaðinn
  • Andri ætlar að endurtaka leikinn frá því síðast og missa sveindóminn
  • Helgi ætlar að henda öllum stólum útum svalarhurðina
  • Rikki ætlar að sjá um allann uppvask og fara svo snemma á laugardeginum útaf því að það er of mikið af pulsum
  • Ég ætla allsber í pottinn þar sem ég á lausu
  • Kiddi ætlar að elda fyrir okkur...kemur við á KFC og kaupir 2x Fjölskyldutilboð ...eitt handa okkur og eitt handa sér...
  • Helgi ætlar sér ekki að reykja vindil þessa ferð heldur borða hann
  • Rikki og Helgi ætla fá sér Tequila skot og æla á hvorn annan

Ég held að það verði tekið alvarlega á því og þetta verði ansi skemmtileg ferð =D ..hlakka mikið til. Sunnefa var svo elskulega að redda mér fríi og er það henni að þakka að ég sé að fara í þessa ferð. Ég átti nefnilega að vera vinna þessa helgi á Sólon.

Kveðja GummOn

Guðmundur Jónsson

::.Æðislegt lag

01. nóvember 2008 klukkan 18:47

Kemst ekki yfir þetta lag....samt alveg keimlíkt Infinity með Guru Josh þegar aðalbeatið kemur. En samt sem áður geggjað lag og er ég 100% viss um að þetta lag fari að heyrast í öllum helstu skemmtistöðum landsins :)



Manian - Turn The Tide 2008 (ESKA Version)

P.s. Var að setja nýjan link hér til vinstri Tónlist#2 ...er að láta lög þar inn sem er á Playlistanum mínum ;)

Kveðja GummOn

Guðmundur Jónsson

Eigandi GummOn´s

  • Nafn: Guðmundur Jónsson
  • Kennitala: 090885-3169
  • Netfang: gummij85@hotmail
  • Staður: Reykjavík/Árbær
  • Atvinna: VV-Sölumaður
  • Hjúskaparstaða: Á lausu
  • Annað: Sólon-Barþjónn

Framundan


3.Okt - Vinna/Sólon
4.Okt - Vinna/Sólon
9.Okt - Sjúkraþjálfun
10.Okt - Vinna/Sólon
11.Okt - Vinna/Sólon
7.Nóv - Sumarbústaður

Lag Vikunnar


Artist-Foo Figthers
Name-Stranger things have happened
Genre-Classic Rock

Afmæli mitt

Þjóðhátíð

Nýjast á HumorPix

Funny Images, Prince Kid Funny Images, Nicolas Cage in every single movie Funny Images, The grasping shirt Funny Images, Give Baldy Your Tit Funny Images, Why I’m watching the summer olympics Funny Images, How to answer every True or False quiz

Leikur dagsins

Innskráningar kubbur

Leit