" />

Okey svo ég byrji nú einhversstaðar þá heiti ég Guðmundur nokkur Jónsson (heiti samt bara Guðmundur Jónsson, þú getur sleppt þessu "nokkur") og nei ef þú ert að hugsa ,,hmm..er hann skildur Guðmundi í Byrginu..??" þá er ég ekki svo heppinn. En já... ég er kallaður Gummi og stundum Jónsson jafnvel GummOn, ekki flókið.

Ég 21 árs einhleypur vitleysingur sem fæddist í Bolungarvík árið 1985 þann 9.ágúst, ég var ekkert smá hress þegar ég kom í heiminn. Ég eyddi mínum 5 fyrstu árunum mínum þar og þvílík sóunn, tjahh neee... segji svona. Þá flutti ég og fjölskyldan mín í árbæinn í Fiskakvíslina, fyndið nafn en samt svolítið töff....NOT. Ég er bara búinn að eiga heima þar bara síðan, eða er allaveg ekkert ennþá fluttur því nú er maður bara heima hjá mömmu og pabba laus og liðugur.

Ég gekk í Ártúnsskóla og síðan í Árbæjarskólann. Svo fór ég í Iðnskólann og kláraði þar Grundeild Trésmiðina og hætti því, því það var svo anskoti leiðinlegt. Þá fór ég bara í FB og stóð mig heldur betur illa og féll á mætingu allar þrjár annirnar sem ég fór í þannig ég hætti þessu rugli fyrir fullt og allt. Ég er að fara aftur í skóla næsta haust og ætla ég mér að fara í píparann. Þá fer ég að öllum líkindum í Iðnskólann í Hafnarfirði.

Ég á bíl....það er Nissan Primera og kalla ég hann "Áka Já", því hann er grænn og muniði ekki eftir teiknimyndunum um laufblaðið Áka Já. En mér þykir mjög vænt um bílinn minn þar sem afi minn og amma mín áttu saman en nú eru þau bara farinn upp til himna. Ég er búinn að vera mjög óheppinn með hann og ætla ég ekkert nánar útí það.

Núna í dag er ég bara vinnandi maður og er að vinna í Kópavoginum í fyrirtæki sem kallast Vatnsvirkinn og er það pípulagningaverslun. Ég er búinn að vinna þar í næstum 3 ár, en planið er að hætta í sumar. Svo er kappinn að vinna um helgar á Sólon sem barþjónn og er það alveg endalaust skemmtileg job!! :

 

Áhugamál mín er fyrst og fremst handbolti. Ég er búinn að æfa handbolta síðan ég var 5 ára. Ég er bara algjört nörd, má segja. Ég æfi að sjálfsögðu með Val og er geymdur í horninu, eða það er mín staða inná vellinum. Ég er kominn í meistaraflokk en er tvöfaldur Íslandsmeistari í 2.flokk. Ég hef líka rosalega gaman af fótbolta. Ég er í utandeildarliði sem heitir "Vatnaliljurnar". Ég veit hvað þú lesandi góður ert að hugsa.....HOMMALEGT NAFN!! En við erum búnir að vera í þessu utandeildarliði í nokkur ár og er ég markamaður á vellinum.

Ég hef líka rosalega gaman af ferðlögum, t.d. að fara til útlanda (hverjum finnst það ekki skemmtó), að fara í útileigu og svo fara í sumarbústaði. Það er bara hrein snilld að gera eitthvað svoleiðis. Svo er náttúrulega gaman að vera með vinunum og djamma. Ég myndi segja að ég væri algjör djamm-bolti...ekki það að ég sé neitt feitur, en bara því mér finnst alveg ótúlega gaman að djamma og vera pínu í því. Því ég held hreinlega að ég sé bara pínu skemmtilegur þegar ég er fullur....þótt ég segji nú frá sjálfur. :D

 

Fjölskyldan mín:

 


Pabbi minn er algjör snilli og er að vinna í Vatnsvirkjanum alveg eins og ég, nema hvað að hann er örugglega aðeins hærra settur í fyrirtækinu og er hann Verslunarstjóri þar. Hann er mjög kátur maður og á það til að vera mjög stríðinn...svona stríðnispúki. Svo er hann pabbi minn svolítið magnaður í skapinu.

Mamma mín er algjört yndi í húð og hár. Hún er að vinna í Múlakaffi og er að afgreiða mat fyrir gamla og sveitta karla. Mamma er hress kona sem allir...eða nærrum allir elska, þá sérstaklega ég. Jafnast ekkert á við þegar mamma er að elda hérna ofaní okkur hérna heima...þá aðalega Grjónagrauturinn hennar, fiskibollurnar og Lagsanjað hennar....alveg snilldar kokkur :-D

Elín systir mín er voða kát stelpa. Ég kalla hana alltaf Vélin og ég veit ekkert afhverju. Ég og einn vinur minn byrjuðum með þetta því það rímar við Elín. En þetta er frábær systir í alla staði og ég lýt upp til hennar, því hún var einu sinni Módel og ferðaðist útum allan heim. Hún á eina dóttir sem heitir Elín Eir og það barn er mesta dúlla í öllum heiminum og jafnast ekkert á við að hafa hana hérna heima í pössun því ég hef nú svo rosalega gaman af henni.

Gaui bróðir er besti bróðir í heimi, ekki skrítið því það er ekki hægt að toppa hann því ég á engan annan bróðir. Samt sem áður geðveikt skemmtilegur bróðir og ég veit ekki hvað ég er búinn að segja oft bróðir þannig ég ætla að reyna að hætta því. Ég og Gaui eigum nú nokkur góð djömminn saman. Hann er kjötiðnaðarmaður og er að vinna í Nóatúni og er með 325 krónur á tímann. Neeeiii...djók!!...Hann er orðinn verslunarstjóri í Nóatúni Rofabæ og ætla ég rétt svo að vona það fyrir hans hönd að hann sé með aðeins meiri laun en það.

 

Eigandi GummOn´s

  • Nafn: Guđmundur Jónsson
  • Kennitala: 090885-3169
  • Netfang: gummij85@hotmail
  • Stađur: Reykjavík/Árbćr
  • Atvinna: VV-Sölumađur
  • Hjúskaparstađa: Á lausu
  • Annađ: Sólon-Barţjónn

Framundan


3.Okt - Vinna/Sólon
4.Okt - Vinna/Sólon
9.Okt - Sjúkraţjálfun
10.Okt - Vinna/Sólon
11.Okt - Vinna/Sólon
7.Nóv - Sumarbústađur

Lag Vikunnar


Artist-Foo Figthers
Name-Stranger things have happened
Genre-Classic Rock

Afmćli mitt

Ţjóđhátíđ

Nýjast á HumorPix

Funny Images, Meanwhile in parallel universe Funny Images, The whispering game Funny Images, Dead men, you do it wrong! Funny Images, Statues Funny Images, Funny Striking Resemblance! Funny Images, Taking the opportunity.

Leikur dagsins

Innskráningar kubbur

Leit