Að vera Hrossafluga
Okey ég veit ekkert hvar ég á að byrja. En hver kannast ekki við Hrossaflugu, þessi ógeðslega lappalanga fluga. Ég held að allir ættu að vita hvað Hrossafluga.....en spá aðeins í að vera Hrossafluga. Váááá....ég gæti ekki hugsað mér að vera þessi viðstyggilega ógeðslega fluga sem er eitthvað að reyna að fljúga en kann það ekkert. Hún flýgur svo asnalega ömurlega að lappirnar ná ekkert að hemja sig og þær flækjast bara fyrir. Þegar ég var lítill þá vorkenndi ég þeim alltaf svo að þegar þær voru svona fastar upp við vegg (sem þær gera alltaf, liggja bara uppvið vegg allann liðlangan daginn) en þá sleit ég alltaf allar lappirnar af fluginni :-D hahahaha....þá voru lappirnar ekki fyrir fluginni.
Ég fór og leitaði upp á netinu og hvað í ósköpunum þessi fluga gerir :
Íslenska hrossaflugan, Tipula rufina, lifir í rökum jarðvegi og mosa og sækir í yl frá hverum. Hún er um allt land en er algengust sunnanlands. Lirfur hennar leggjast í vetrardvala og flugur koma úr púpum á breytilegum tíma allt sumarið. Flestar hrossaflugur lifa í um það bil ár. Þær éta meðal annars köngulær, flugur, snigla, ánamaðka, fuglaskít og sveppi. Hrossaflugan heitir á ensku ýmist 'crane fly' eða 'daddy-long-legs' en seinna heitið er líka notað um köngulær sem líkjast hrossaflugum í útliti.
Óóóókey...HALLÓ.....þessi fluga lifir í 1 ÁR!!!! Ertu ekki að grínast....ég ætlaði ekki að trúa mínum eigin augum að þessi ömurlega fluga lifði svona lengi. Ég hélt að hún myndi bara lifa í 4 daga því allir sem ég þekkja sem þekkja til þessarar flugu HATA hana og drepa hana um leið og þeir sjá hana. En já þarna stendur líka að þær éta köngulær....ég hélt að það væri öfugt og mér finnst í rauninni ekkert skrítið afhverju Hrossaflugan er svona ógeðslega ljót....nú jæja hún étur :
Köngulær = þar fær hún lappirnar
Flugur = Þar fær hún vængina til að fljúga sem þessi ógeðslega fluga hefur ekki fengið neina kennslu í því að fljúga
Sngila, ánamaðkam og fuglaSKÍT = Það fær hún útlitið
Sveppir = Þar lærir hún að sitja kyrr á sama stað ýkt lengi og gegna engum tilgang
15.maí 2005









