Rúsínu Pæling
Ég þoli ekki þegar fólk segir að maður sé mikil rúsína.....HALLÓ RÚSÍNA!!! Ég veit ekkert um neitt ógeðslegra en orðið rúsína. Rúsína er eitthvað lítið, krumpað, svart þurrkað ber. Ég sé allvega ekkert sérstaklega fallegt við að vera einhver rúsína.
Jæja hér kemur annað dæmi sem fólk tekur oft til orðanna og þá er þetta oft sagt við lítil börn. Dæmi: Oooo hvað hún/hann er mikið rassgat.....RASSGAT, hvað sér fólk fallegt við rassGAT?? Ég meina það er alveg til fallegir rassar en ekki rassGÖT, ég er allavega ekkert mikið að spá í rassagötum á fólki. Fólk á allvega ekki að segja þetta við börn því þetta er ekki fallegt, ekki væri til í að vera eitthvað rassgat.
1.maí 2005










