Kúka Pælingar #2
Hver kannast ekki við kúkaklepra? Þegar kúkurinn festist í hárunum, eða þú skeinir og skeinir og ekkert virðist bíta á kleprana. Þetta vandamál með hárin eru nú aðallega hjá okkur köllunum (ætla ég að vona), en hvað er til ráða? þarf maður að raka á sér rassgatið? Ég ráðlegg öllum eindregið að láta slíka hluti aðeins í hendurnar á fagmönnum. En það er kanski ekki allt of margar klippistofur sem taka að sér slík verkefni en áhugasamir endilega hafið samband.Nú ágætis lausn á þessu er að hafa spegil við hendina eða á góðum stað þar sem þú getur skoðað kleprana áður en þú hefur skeiningu, þá er hægt að meta hvað þarf margar umferðir af pappír, hvort velja eigi mjúkan, tvöfaldan eða harðan pappír og svo skeina eftir þörfum. Ef þetta bítur ekki er eina lausnin að skella sér í baðkarið eða sturtuna og spúla á sér rassgatið þar til allt er farið. Þetta er bara ráðgjöf og pæling til þeirra sem eiga við þessi vandamál að stríða. Ekki ég....
Ég hef mikið verið að pæla í því hvort fólk gerir svona lendingarpall (hreiður) þegar það kúkar. Kúkalendingarpallur (hreiður) er svo að það skvettist ekki klósettvatn á rassinn þinn þegar þú kúkar, semsagt þú setur klósettpappír ofan í klósettið áður enn þú byrjar. Nefnum ógeðslegt dæmi hér ef ekki er notaður lendingarpallur:..Strákur/stelpa er allveg að kúka í sig og þarf líka geðveikt að pissa, hann/hún sest í flýti á klósettið og pissar fyrst...svo kúkar hann/hún...kúkurinn skellur í vatnið og fullt af vatni fer á rassinn á honum/henni. Semsagt það fer piss úr þeim á rassinn á honum/henni...ógeðslegt. Gott er að setja eitt blað af andrésblaði í klósettið áður en fæðingin byrjar segir Árni Long og hann talar af eigin reynslu. Ég hef spurt nokkrar stelpur hvort þær noti lendingarpall en þær vita bara ekkert hvað ég er að tala um og skilja mig ekki.
Og hver kannast ekki við að vera útað borða eða vera á djamminu og þú þarft að kúka. Þú ferð inná klósett og það er búið að pissa á alla setuna og þú veist ekkert hvað á að gera. Ef þú hefur horft á American Pie 1 þá vitið hvað ég er að tala um. Þú raðar klósettpappírnum hringinn í kringum setuna þangað til að það er orðið svo þurrt að þú getir setið á setuna. Og svo má ekki gleyma að setja lendigarpallinn (hreiðrið) áður en þú lætur allt flakka.
En jú þetta er pæling hjá mörgum og ég held að margir hverjir þora ekkert að viðurkenna að þeir geri þetta. Þetta er ekki neitt til að skammast sín fyrir því manni á að láta sér líða vel þegar maður er að kúka. Sumir segja að það sé allt að 7% fullnæging þegar maður er búinn að kúka, en ég tek það hér fram að ég er ekki að fá fullnægingu að kúka.
4.apríl 2005









