Beztu vinir í öllum heimi :D
Egill Steinar Ágústsson
a.k.a. Steini - Steini með hárið - Spiderman
Aldur: 22 ára (85' módel)
Smá info: Steini er minn æsku vinur minn og gæti ég ekki hugsað mér betri vin. Hann er bara æðislegur í alla staði og treysti ég honum fyrir gjörsamlega öllu. Ég kynntist honum þegar ég var sirka 2 ára en þá var mamma mín og mamma hans Steina (Hulda, mamma mín nr.2) alltaf saman með okkur í Bolungarvík. Ég flutti frá Bolungarvík til Reykjavíkur þegar ég var 5 ára og erum við Steini búnir að halda sambandi síðan...sem mér þykir alveg ótrúlegt og í rauninni bara merkilegt!!
Bestu móment: Þau eru alveg ótalmörg og kannski erfitt að velja eitthvað úr enda búinn að þekkja þennan mann í meira en 20 ár!! En ég held að það toppi ekkert sumarið 2000 þegar við vorum hérna heima yfir verslunarhelgi og að spila nintendó og að drekka bjór í góðum fýling, ég, Bjössi, Viðar og Steini. Ég stakk uppá því að fara og gera eitthvað flippað og tóku allir undir það. Við fórum þá út með sög og fórum að saga eitt tré sem ég og Bjössi hötuðum svo mikið!! Eftir að hafa hlegið mikið var það ekki nóg...við röltum félagarnir í Ártúnsskóla og fórum að saga einhvern runna. Sögin var ekki nóg fyrir okkur fjóra og fórum við heim og sóttum skrúfjárn til þess að geta brotist í einhverja vinnukistu fyrir vinnuskólann. Við sóttum fullt af skrúfjárnum, einhverjar sagir og eina exi. Við brutumst svo í vinnukistuna og tókum einhverjar klippur og dót. Svo fórum við að klippa þennan runna í einhverri fyllerísvitleysu. Svo vorum við ekki alveg að nenna því...þá fórum við aðeins lengra og ætluðum við að fella eitt RISAstórt tré, þangað til að við heyrðum í bíl, þá var löggan mætt á staðinn og við byrjuðum á því á hlaupa eins hratt og við GÁTUM og löggan á eftir okkur. Ég faldi mig í einhverju háu grasi og sá ég lögguna ná strákunum og voru þeir allir handjárnaðir!!Ég var alveg skíthræddur og hljóp bara heim alveg miður mín. Eftir svona tvo tíma komu strákarnir alveg skelli hlægjandi og skildi ég ekki neitt í neinu og spurði þá hvað hefði eiginlega skeð. En þá voru þeir grunaðir um innbrot. Þeir voru allir yfirheyrðir og tóku þessu grafalvarlega. Löggan lét þá tæma alla vasa og þá voru þeir með skrúfjárn, einhverja sög og exi :D ekki lítið grunsamlegir. Og enn neituðu þeir auðvitað löggunni. Þá spurði löggann víst þeir voru ekki að brjótast inn með þessi tæki og tól...hvern djöfulinn þeir væru eiginlega að gera um hámiðjan nótt fullir og vitlausir. Æji ...bara saga tré!!!
En svo eru auðvitað mörg önnur móment með honum Steina kallinum, t.d. bara alltaf þegar ég hef lagt leið mína vestur, svo Borgarnestímabilið þegar hann átti heima þar, þegar við fórum saman til Svíþjóðar, öll fótboltamótin sem við höfum tekið þátt í og svo framvegis.
Ríkharð Óskar Guðnason
a.k.a. Rikki - Rikki Gjé - Ríthard
Aldur: 22 ára (85' módel)
Smá info: Hann Rikki félagi minn er alveg einstakur karakter og frábær strákur í alla staði. Ég er búinn að þekkja þennan mann síðan í 8.bekk í Árbæjarskóla en þar kynntist ég honum og man ég rosalega vel eftir því. Hann er harður Valsari og hitti ég hann yfirleitt á handboltaleikjum Vals. Einn daginn ákváðum við bara að fara saman leik og urðum við bara strax hinir bestu mátar í kjölfarið.
Bestu móment: Satt best að segja á ég mörg góð móment með honum Rikka, en ég gleymi seint þegar við fórum saman á Sumardjamm957 á Broadway þegar við vorum 17 ára vitleysingar. Við vorum svaðalegir á þessu balli en ég er ekki frá því að við kláruðum heila neftóbaksdollu innan við klukkutíma :D ...svo var einhver stokker á ballinu sem tók í alvörunni svona 100 myndir af mér og Rikki prentaði þær allar út og gaf mér bók í afmælisgjöf!! Svo má líka tala um allar golfferðinar sem við höfum farið í, því þar hefur Rikki verið í aðalhlutverki því honum hefur tekist allt í golfi og þá erum við að tala um hversu misheppnaður hann er (en í dag er hann orðinn fjandi seigur). Svo er annað sem má ekki gleyma...en það er Ópustímabilið, þegar við vorum að uppgötva bæinn í fyrsta skipti og ég var alltaf með honum Rikka í DJ búrinu góða...alveg yndislegir tímar!!
Helgi Þorvaldsson
a.k.a. Helgi - Hagkaupspokinn - Feiti maðurinn
Aldur: 22 ára (85' módel)
Smá info: Helgi er alveg frábær strákur og hefur oft verið nefndur sem Trúðurinn í hópnum. Það er svo fyndið að ég kynntist honum Helga almennilega í gegnum hann Rikka, en Helgi var í sama skóla og ég og maður rétt svo heilsaði honum í göngunum í skólanum. En svo fór maður að kynnast þessum strák betur og er ég mjög feiginn því að hafa kynnst þessum meistara.
Bestu móment: Ég hef held ég aldrei djammað eins mikið og með þessum manni og má segja að hann sé líka einn besti djammfélagi sem ég hef kynnst því við getum verið alveg hrikalega flippaðir á djamminu. En það er eitt djamm sem ég gleymi held ég aldrei, en þá vorum við Helgi búnir að vera á djamminu niðrí bæ og alveg haugafullir og nýkomnir heim til Helga sem var einn heima. Við vorum ekkert á því að fara sofa og ætluðum að fara drekka meira. Eina sem við áttum var einn vodkapeli og bað ég Helga um að ná í bland. Helgi fór inní eldhús og taldi upp það sem hann átti....og það var Vatn og mjólk. Ég bað þá bara Helga um að koma með mjólkina!! Og vitir menn....við kláruðum pelann!!! Eftir pelann löbbuðum við berir að ofan á Select klukkan 9:30 um morguninn og fengum okkur pylsu mjög skrautlegir :D
En það skemmtilegasta sem ég hef gert með honum Helga er allar fjórar Þjóðhátíðirnar sem ég farið á og svo má ekki gleyma Benidorm 2005 og Tenerife 2006 þar sem við djömmuðum samanlagt í mánuð...eða fullir í 4 vikur :D ...svo má auðvitað telja upp allar sumarbústaðarferðirnar, útileigurnar og Vesturferðirnar!!
Andri Stefánsson
a.k.a. Andri - Gaylord - Mjúki maðurinn
Aldur: 22 ára (85' módel)
Smá info: Andri hefur alltaf verið lang mjúkasti gaurinn í vinahópnum að mínu mati og gaurinn sem er ýkt duglegur í skóla :D ...og hann má eiga það, því hann er það!! Hann Andri er alveg mjög góður vinur minn og alltaf gaman að hitta þennan strák. Ég kynntist honum eiginlega á sama tíma og Helgi...og þá í gegnum hann Rikka. Mér þótti ekkert Andri neitt sérlega töff þegar ég var að kynnast honum en mér skjátlaðist og erum við að tala alveg um eðal strák sem á allt gott skilið :)
Bestu móment: Það er eiginlega bara allt það sem ég, hann, Rikki og Helgi höfum gert í gegnum tíðinna. En ég man eftir einu helvíti skemmtilegu djammi hjá okkur Andra þar sem hann var á túr eða eitthvað en þegar við vorum komnir í bæinn byrjaði hann bara að rífa kjaft við allt og alla. Hann byrjaði á því að rífa kjaft við alla dyraverði og komumst við ekki neinstaðar inn, nema einhvern einn stað sem var b.t.w. ÖMURLEGUR :D Við fengum okkur sæti og þá sagði Andri: Ég ætla stela þessum kertastjaka...ég man að ég hló bara!! Andri stakk honum inná sig og ætlaði að fara út en var stoppaður af dyraverðinum og hann spurði hvað hann væri með inná sér. Andri sagði bara að hann væri ekki með neitt og svo hljóp Andri bara eins HRATT og hann gat út og ég á eftir honum. Andri fór í hláturskast og þá spurði ég Andra hvað hann ætlaði að gera við stjakann. Þá tók hann kertastjakann og þrumaði honum í einhvern vegg :D ...það var einum OF fyndið því það var ekkert point að stela þessu. Svo á leiðinni heim var Andri að reyna að fá einhverja stelpu með sér heim (án árangurs) og alltaf þegar stelpa neitaði honum sagði hann bara við hana : Mér er líka alveg sama...þú ert líka bara ÓGEÐSLEGA ljót!! :D
Guðjón Jónsson
a.k.a. Gaui - Gaui*punktur*is - Eyrnapinninn - Gauiiiiiiiiii
Aldur: 22 ára (85' módel)
Smá info: Hann Gaui...eða öllu heldur Gaui.is er æðislegur strákur sem ég kynntist í gegnum hann Helga. Við fyrstu sýn á honum Gaua var ég ekki alveg að fýla hann því mér þótti hann alltaf svo mikill gúmmítöffari og alveg svaðalega leiðinlegur gæji. Svo er þetta bara með svo marga um leið og maður kynnist einstaklingnum þá er hann bara topp náungi og Gaui er einmitt þessi topp náungi.
Bestu móment: Ég er búinn að eiga margar góðar stundir með honum Gaua en þær stundir hafa nú aðalega verið í 101 Reykjavík á skemmtistaðnum Sólon þar sem við erum svakalega duglegir að fara. Svo má auðvitað nefna þegar við fórum til Tenerife 2006, þá fékk maður að kynnast honum miklu meira og vorum við duglegir að hanga saman þar og drekka okkur fulla :D Ég gleymi ekki þegar við vorum að vinna saman á Sólon og það var einhver kínverji að vinna með okkur sem talaði hvorki íslensku né ensku og vissum við EKKERT hvað hann hét!! Ég spurði Gaua hvort hann vissi eitthvað hvað hann héti, þá svaraði Gaui alltíeinu já það veit ég alveg, hann heitir Kíni. Við fórum alveg í hláturskast og þetta var aðalbrandari kvöldsins. Svo rákumst við á hann Kína eitthvert djammið og við knúsuðum hann ýkt mikið!!
Grétar Freyr Grétarsson
a.k.a. Grétar - Selurinn - Dúllustrákur - Grétarios
Aldur: 22 ára (85' módel)
Smá info: Það má segja að hann Grétar er algjör Gullmoli og jafnast ekkert á við að hafa hann í góðum félagsskap. Ég kynntist honum Grétari gegnum hann Helga aðalega og erum við mjög góðir vinir í dag. Þetta er svakalega ljúfur drengur og varð maður strax var við það við fyrstu kynni. Ég hélt að það kæmi aldrei sá dagur að hann Grétar fengi sér í glas, en allt í einu einn daginn fékk prufaði hann og hefur hann verið NON-stop síðan :D Grétar á allt gott skilið...
Bestu móment: Það má segja að ég eigi margar góðar stundir með honum Grétari en þá erum við að tala um eina og hálfa þjóðhátíð, allar vesturferðirnar og svo auðvitað Tenerife 2006. Uppá síðkastið höfum við Grétar verið mjög duglegir við djammið í bænum og vonandi heldur það eitthvað áfram!! En besta móment var þegar við vorum fyrir vestan og vorum svaðalega fullir og Helgi fór í eitthvað veðmál við hann Grétar um hvor myndi vera á undan á einhverja eyju nakinn, og þá erum við að tala um að það var svolítið langt í eyjunna og var alveg nokkuð mikið vatn þarna. Grétar rústaði honum Helga og fór úr fötunum og labbaði yfir ...nakinn :D ..en vá hvað það var fyndið að mig var farið að verkja í magann!!
Páll Pálsson
a.k.a. Palli - Pallster - Rændi gaurinn
Aldur: 22 ára (85' módel)
Smá info: Palli er alveg merkilega frábær gaur og kom mér mest á óvart hversu mikill snillingur hann er. En ég kynntist Palla almennilega árið 2005 á Benidorm í þeirri ógleymanlegu ferð sem ég mun seint gleyma. Mér finnst samt að ég sé búinn að þekkja Palla miklu lengur en aðeins í 2 og hálft ár enda er um að ræða frábæran strák.
Bestu móment: Það er að sjálfsögðu Benidorm 2005 þegar við vorum komnir með algjört ógeð af drykkju, enda búnir að drekka marga daga í röð og við strákarnir ætuðum bara að vera rólegir þetta kvöldið. Ég og Palli vorum samt harðir á því að fara í pool en Halli, Ívar og Helgi voru ekkert alltof mikið á því að fara í pool, þannig ég og Palli fórum bara tveir. Svo þegar við vorum komnir á þennan bar fórum við beint á barinn og sögðumst ætla bara að fá okkur einn drykk með poolinu....vitir menn, við enduðum á RASSgatinu og hittum svo strákanna seinna um kvöldið og þeir voru ekkert að skilja neitt í neinu :D ...svo líka þegar við ætluðum að finna okkur einhverja strippbúllu og okkur var bent á eina strippbúllu og tókum Taxi þangað sem var b.t.w. í svona 20 mín frá Bene, þegar við vorum komnir inn vorum við ekkert að skilja neitt í neinu því það voru engar stelpur að dansa, heldur var þetta hóruhús :D ..við vorum fljótir að láta okkur hverfa þaðan...en það var samt ekkert smá fyndið!!
Svo var ekkert smá gaman á þjóðhátíð 2007 með honum Palla og ég tala nú ekki um allar sumarbústaðarferðirnar sem við höfum farið saman í.
Haraldur Óli Ólafsson
a.k.a. Halli - Fighter - Endajaxlinn
Aldur: 22 ára (85' módel)
Smá info: Hann Halli vinur minn er einn sá skemmtilegasti sem ég hef kynnst og kom hann mér virkilega á óvart hversu gaman er að hanga með honum. Ég kynntist honum Halla fyrir sirka 3 - 4 árum og þá í gegnum hann Helga og er þessi tími búinn að vera fáranlega stutt að líða, gæti líka verið útaf því að hann Halli er mjög iðinn við að finna sér stelpu til þess að kúra með og svo er hann líka duglegur í skólanum þessa daganna. En það jafnast ekkert á við að fara með Halla á djammið því hann gerir stundum svo heimskulega hluti að það er ekki eðlilegt og það er hægt að hlægja mikið af þessum dreng....algjör meistari :)
Bestu móment: Það er hægt að telja mjög mörg móment með honum Halla kallinum en það sem myndi standa uppúr væri auðvitað Benidorm ferðin 2005...alveg ógleymanleg í alla staði. Svo þær útihátíðir sem við höfum farið á og ég tala nú ekki um öll djömminn okkar!!
En ég man samt þegar ég hitti hann Halla í fyrsta skipti var þegar við Helgi vorum að fara á djammið og ég var talsvert fullur og þekkti manninn nátturulega ekkert. Svo á leiðinni sagði Helgi honum að stoppa bílinn þar sem hann þurfti alvarlega að æla. Halli stoppaði bílinn um leið og Helgi fór út og skellti hurðinni á eftir sér....þá rumskaði ég við mér þar sem ég var hálfdauður afturí. Ég opnaði hurðina blindfullur og þakkaði bara pent fyrir farið og lokaði á eftir mér. Ég skildi ekki neitt í neinu þegar ég var kominn út og ekki Helgi heldur sem var búinn að æla og var að labba í átt að bílnum. Þá fattaði ég að við vorum ekkert komnir heldur þurfti bara Helgi að æla og ég fór aftur eins og skítur inní bíl og Halli hló endalaust af mér !!!
Jón Ragnar Guðmundsson
a.k.a. Jón - Johnny boy - Edrú gaurinn
Aldur: 22 ára (85' módel)
Smá info: Jón er örugglega einn sá ljúfasti strákur sem ég hef kynnst. Ég ætla sko ekkert að skafa af því, en hann Jón er frábær í alla staði og á allt gott skilið. Þetta er gaurinn sem drekkur ekki og fer edrú í bæinn og skemmtir sér konunglega með okkur strákunum. Hann fær sér bara tvo til þrjá BuRn og þá fer maðurinn í Black Out. Ég kynntist Jóni fyrir svona 3 árum en hitti hann í fyrsta skipti á Landsmóti 2001 fyrir Vestan og fékk hann til þess að skutla mér til Bolungarvíkur frá Ísafirði svolítið fullum þá...en ég var að fara labba þangað og kom hann og bjargaði mér frá öllu labbinu!! En ég verð bara að segja að það er frábært að Jón skuli vera loksins búinn að flytja hér í bæinn svo maður geti verið meira með honum.
Bestu móment: Ef ég á að vera hreinskilinn þá eru þau ekkert ótrúlega mörg þar sem hann er nú nýfluttur í bæinn. En öll þau skipti sem ég hef komið til Akureyrar hefur Jón alltaf tekið ógeðslega vel á móti mér og er ég mjög þakklátur fyrir það. En ég gleymi seint kvöldinu sem ég, Jón, Steini og Gaui bró eftir útskriftina fórum á djammið og enduðum svo á rúntinum að kasta eggjum í allt og ekkert...víð hlógum svo ótrúlega mikið þetta kvöld og svo þurfti greyið Jón að þrífa bílinn sem var allur útí eggjum.
Jökull Finnbogason
a.k.a Jökull - Jökli - The Zoo guy
Aldur: 22 ára (85' módel)
Smá info: Við fyrstu kynni á honum Jökla voru ekkert sérlega góð ef ég á að vera hreinskilinn!! Ég skildi aldrei afhverju þessi maður var alltaf að elta okkur :D ..var ég nærrum því farinn að kalla hann segulinn. En svo fór maður bara að kynnast honum betur og er þetta frábær gaur, en ég kynntist honum Jökla í gegnum Gaua.is og Grétar. Ég er búinn að þekkja Jökla í svona tvö ár og finnst mér alveg merkilegt hvað þessi maður er alltaf jafn tilbúinn til þess að fá okkur vitleysingjanna til sín heim í drykkju. Alltaf gaman að koma til hans og gera eitthvað skemmtilegt...enda að koma heim til hans er eins og að koma í dýragarð!! :D
Bestu móment: Ég verð að segja Tenerife 2006, því þá fékk maður að kynnast honum miklu betur og var oft á tíðum gaman hjá okkur!! Svo allar útileigur sem við höfum farið í og öll djömm og svo að ógleymdu kartöflubyssan hans Jökuls sem við höfum verið að leika okkur með!!
Hjalti Hjálmarsson
a.k.a. Hjalti - Zoolander - Prittý boj
Aldur: 23 ára (84' módel)
Smá info: Þessi snillingur man ég hitti í fyrsta skipti í einhverri sumarbústaðarferð 2004. Þá hafði ég ekki hugmynd hver þetta væri...svo hitti ég hann oftar og oftar í hinum og þessum partýum. Þá fór ég aðeins að kynnast honum og ótrúlegt hvað þessi maður er geðveikt nice!! Hann er alveg ótrúlega kammó og ótrúlega gaman að spjalla við hann því það er eitthvað svo auðvelt að hálfa væri nóg :D Ég fýla allavega Hjalta alveg í botn og er alltaf jafn gaman að hitta hann :)
Bestu móment: Verð bara segja aðalega öll okkar djömm og sumarbústaðarferðir!! Ég gleymi samt aldrei þegar við vorum búnir að vera djamma geðveikt lengi og vorum búnir að skemmta okkur alveg konunglega í bænum og fórum svo heim til hans Hjalta eftir djammið og kveiktum bara á Svamp Sveinsson og vorum bara eitthvað að horfa á það eldsnemma um morguninn í hláturskrampa, því þátturinn sem við horfðum á var svo ýkt fyndinn og svo STEINsofnuðum við bara!!
Ómar Rafn Stefánsson
a.k.a. Ómar - Megaman strákurinn - Colgate
Aldur: 22 ára (85' módel)
Smá info: Ómar er kannski mesta dúlla sem ég hef kynnst. Ótrúlega eitthvað góður strákur og gott að eiga samræður með honum. Ég viðurkenni það alveg að ég man ekkert eftir því hvenær ég hitti Ómar í fyrsta skipti...en ég er alveg búinn að þekkja hann í 4 ár allavega. Hann er alveg ótrúlega skemmtilegur og gaman að fara með honum á skrallið um helgar og ómissandi í bústaðarferðum því maður veit ekki hvað þessi maður tekur uppá að gera!!
Bestu móment: Bestu mómentin mín með honum Ómari er klárlega þegar við vorum í sumarbústað einir inni í Singstar með einungis handklæði utan um okkur, nýkomnir úr pottinum og bústaðurinn fylltist allt í einu af stelpum og voru ekki alveg að skilja hvað væri í gangi því við vorum líka að syngja eitthvað hommalegt lag :D Svo líka í sömu bústaðarferð þegar hann Ómar hvarf í nokkra klukkutíma og við vissum EKKERT hvar hann var og svo birtist hann alltíeinu í einhverjum fjólubláum þröngum galla með einhvað gult sjal á hausnum!! Það var virkilega fyndið :D ...og svo að öllu ógleymdu þegar ég og Ómar vorum svo fullir í síðustu bústaðarferð að við dönsuðum við Megaman tónlist ALLA nóttina og tókum það uppá vídjó.
Rafn Þór Rafnsson
a.k.a. Rafn - Suit UP - Siggi
Aldur: 22 ára (85' módel)
Smá info: Þetta er hann Rafn, prakkari...og hann er í BYR. Nei djók!! En hann Rafn er alveg eðal gæji sem ég kynntist í gegnum hann Hjalta og er frábær strákur í alla staði. Þessi maður er fáranlega fínn alltaf og hef ég ALDREI séð hann án þess að vera í jakka fötum...nema þegar hann er í sumarbústað, þá klæðist hann Man Utd treyju og er ánægður með það auðvitað. Ótrúlega skemmtilegt að fara með þessum manni á djammið og vill hann helst alltaf vera Suit UP!!
Bestu móment: Það er hægt að telja mörg djömmin hjá okkur Rafni. En ég gleymi því seint þegar ég, Rafn og Steini vorum í einhverju partý í bænum. Þegar við ákváðum að yfirgefa staðinn fórum við út og ætluðum við bara að rölta á Sólon sem var ekkert langt frá. Við vorum í alvörunni í svona klukkutíma á leiðinni í stað 5 mín, og vorum við strákarnir að tala um Guð....w.t.f.!!! Ég man eiginlega ekkert út á hvað þessar samræður gengu, en svona eftir á hyggja var þetta mjög fyndið allt saman :D
Guðmundur Ívar Eggertsson
a.k.a. Ívar - Skeggi - Ívlgja (Ívar+Bylgja)
Aldur: 22 ára (85' módel)
Smá info: Svolítið langt síðan að ég kynntist honum Ívari en það eru alveg 4 - 5 ár síðan. En þá þekkti ég hann voða lítið en tók eftir því hversu klikkaður gaurinn var á Colt-inum sínum því hann keyrði eins og brjálæðingur. En ég kynntist honum eiginlega ekkert almennilega fyrr en á Benidorm 2005 og þá fór maður að sjá allt aðra hlið á manninum. En hann er alveg Ótrúlega hress og gaman að fá sér í glas með honum að það er ekki fyndið. Frábær gaur í alla staði og gaman að hafa kynnst þessum manni...
Bestu móment: Ég myndi segja þegar við fórum til Benidorm 2005 þar sem ég og Ívar vorum langmestu djammararnir á Bene :D ...við vorum MJÖG iðnir við að fara á Jokers og uppá danspallanna og dansa af okkur rassgatið við góða Teknó músík. Svo þegar við fórum og fengum okkur að drekka vorum við spurðir svona 10 sinnum hvort við værum á einhverju...og við svöruðum alltaf að við værum bara á alkahóli :D
En svo er það bara svo margt sem ég get nefnt hérna...allar útileigurnar, bústaðarferðir og öll djömminn hérna í RVK!!!
Jóhann Stefánsson
a.k.a. Jói - Joe Patrol - Hoe
Aldur: 19 ára (88' módel)
Smá info: Ég kynnsti Jóa auðvitað í gegnum hann Andra og líka honum Helga. Ég er búinn að þekkja hann í svona 2 ár og þá var þessi maður síðhærður og hélt ég að hann væri alveg snaröfugur....en mér skjátlaðist og er hann bara sykurpúði með meiru. Þetta er algjör snillingur þessi strákur og þegar maður er með honum þá finnst mér hann svona einn af okkur, eða vera jafn gamall okkur!! Frábær náungi í alla staði :)
Bestu móment: Ég myndi segja þegar ég, Jói og Gunni fórum saman á Mafíuball Versló allir alveg eins...í svörtum skóm, svörtum buxum, svörtum bol, svartur pípurhattur og í hvítum axlaböndum. Við fengum allavega ekki smá mikla eftirtekt og var mikið dansað á gólfinu :D ...einum of gaman!!!
Svo má ekki gleyma Þjóðhátíð 2007 sem var ALGJÖR snilld, en það var ekkert smá fyndið hvað hann greyið Jói var stundum þunnur útí eyjum og eitt sinn vaknaði hann hálfnakinn við hliðiná bróðir mínum og var mikið hlegið af því!! En það var bara snilld að Jói skildi hafa joinað okkur til eyja!!
Skúli Skúlason
a.k.a. Skúli - Massi Massason - Aygo
Aldur: 23 ára (84' módel)
Smá info: Ég er búinn að þekkja Skúla í sirka 2 ár en hann vinnur með mér á Sólon. Það er alveg merkilega gaman að vinna með honum Skúla enda erum við alveg með sama húmor og vantar ekki uppá aulahúmorinn í vinnunni :D Þegar ég er í vinnunni þá er ekkert jafn skemmtilegt og þegar Skúli er að vinna....því við erum fokkings gott TEAM!!
Bestu móment: Ég hef ekki farið mikið með honum Skúla á skrallið því maðurinn er á PIKKFÖSTU!!! En ég verð bara að segja þegar við fundum upp Aygo drykkinn okkar, það var alveg ÆÐISLEG stund, svo er bara öll þau skipti sem ég hef fengið að vinna með honum....mikill heiður ;)
Ægir Már Burknason
a.k.a. Ægir - Hláturskrampi
Aldur: 22 ára (85' módel)
Smá info: Þetta er hann Ægir og er góðvinur minn og rosalega fínn strákur sem ég er búinn að þekkja í sirka 3 ár. Ég kynnstist honum í gegnum hann Helga og co og byrjuðum við fljótlega að spjalla saman og fýla ég þennan strák virkilega. Jafnast heldur ekkert á við að fara með honum í bíó því maðurinn hlær ekkert eðlilega hátt :D
Bestu móment: Það er nú ekkert eitt sem stendur uppúr hjá mér og Ægi en öll þau skipti sem ég hef farið með honum á djammið hefur verið alveg hin besta skemmtun og líka þær útileigur og sumarbústaðarferðir sem hann hefur komið með okkur í :)
Kristbjörg Jónasdóttir
a.k.a. Kristbjörg - Krissa - Krúsímús
Aldur: 20 ára (87' módel)
Smá info: Það er nú ekki langt síðan að ég kynntist henni Kristbjörgu minni, en ég kynntist henni sumarið 2007. Við vorum að vinna saman á BuRn partýinum yfir allt sumarið og hef ég ekki kynnst lengi svona lífsglaðri stelpu. Ég og Krissa mín eigum mjög margt sameiginlegt og það er þó aðalega DJAMM!! Mér þykir ofsalega vænt um þessa stelpu og vonandi verða hittingarnir fleirri með tímanum.
Bestu móment: Það er auðvitað Sumarið 2007 í heild sinni!! Við áttum ótrúlega mörg djömm saman þetta sumarið en svona skemmtilegasta djammið var örugglega fyrsta djammið okkar og fann ég strax við fyrstu kynni að við yrðum mjög náin. Svo má ekki gleyma skemmtilega fimmtudagsdjamminu okkar þegar við fórum saman í keilu og vorum orðin sódölvuð í restina :D








